Fréttir
Meistaraverkefni um orkuframtíð Vestfjarða
Brianna Marie Cunliffe lauk nýverið meistaraverkefni í sjávarbyggðafræði hjá Háskólasetri Vestfjarða með rannsókn sem nefnist Participatory Planning for Resilient Westfjords Energy Futures: Consequences of the Status Quo and Barriers to Transformative Change. Lokaverkefni hennar er eitt af fjórum verkefnum meistaranema sem hlaut styrk Byggðastofnunar í desember 2024.
Verkefnið fjallar um orkuframtíð Vestfjarða og hvernig hægt sé að byggja upp meira orkuöryggi og seiglu í afskekktum byggðum. Sérstök áhersla er lögð á að greina áskoranir og veikleika núverandi raforkukerfis, áhrif rafvæðingar og loftslagsbreytinga og hvort þátttökumiðuð áætlanagerð geti hjálpað til við að móta betri og réttlátari orkuframtíð fyrir svæðið.
Rannsóknin er eigindleg og byggir á viðtölum og vinnustofu um framtíð orkumála á svæðinu. Þátttakendur vinnustofu voru með ólíkan bakgrunn, sérfræðingar sem og íbúar án sérþekkingar á orkumálum, fulltrúar stofnana, atvinnulífs og samfélagsins á Vestfjörðum. Í vinnustofunni unnu þátttakendur með gildi, kerfiskortlagningu og framtíðarsviðsmyndir.
Helstu niðurstöður eru að orkukerfi Vestfjarða er talið viðkvæmt, meðal annars vegna veikrar tengingar við landskerfið, tíðra truflana og notkunar dísilrafstöðva í rafmagnsleysi.
Fram kemur að þátttakendur voru almennt óánægðir með núverendi stefnumótun, töf á aðgerðum og skort á nýsköpun. Þó voru skiptar skoðanir um hvort lausnin fælist fyrst og fremst í aukinni orkuframleiðslu, til dæmis með virkjunum, eða frekar í minni eftirspurn, smærri lausnum og sterkari hringtengingu. Samstaða var þó um að styrkja þarf flutningskerfið og tryggja stöðugra raforkukerfi. Rannsóknin bendir einnig til þess að stærstu hindranirnar séu ekki eingöngu tæknilegar heldur félagslegar og pólitískar. Íbúar upplifa núverandi samráð oft sem yfirborðskennt og vilja raunverulegri þátttöku í ákvarðanatöku um orkuframtíð svæðisins.
Sjá meistararitgerð: Participatory Planning for Resilient Westfjords Energy Futures: Consequences of the Status Quo and Barriers to Transformative Change
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015

- 2014

- 2013

- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008

- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember