Fara í efni  

Fréttir

NORA óskar eftir verkefnahugmyndum og styrkumsóknum

NORA óskar eftir verkefnahugmyndum og styrkumsóknum
NORA

Norræna Atlantssamstarfið, NORA, styrkir samstarf á Norður-Atlantshafssvæðinu. Í því augnamiði veitir NORA verkefnastyrki tvisvar á ári til verkefna sem eru í samstarfi a.m.k. tveggja aðildarlanda, en löndin innan NORA eru Ísland, Grænland, Færeyjar og strandhéruð Noregs. Nú óskar NORA eftir styrkumsóknum með umsóknarfrest mánudaginn 2. mars 2015.

Áherslur NORA varðandi verkefnastuðning á tímabilinu 2012-2016:

  • Að styrkja sjálfbæra þróun efnahagslega mikilvægustu atvinnugreina svæðisins með því að styrkja nýsköpunarverkefni á sviði sjávarútvegs og auðlinda hafsins. Það geta til að mynda verið verkefni sem snerta aukaafurðir og vannýttar auðlindir.
  • Að skapa ný tækifæri og efla fjölbreytni svæðisbundinna hagkerfa með því að styðja þróun nýrra atvinnutækifæra, framleiðslu, framleiðsluaðferða og markaðssetningar, t.d. verkefni í ferðaþjónustu, landbúnaði eða verkefni sem varða endurnýjanlegra orkugjafa.
  • Að sigrast á fjarlægðum, með því að styrkja verkefni á sviði fjarskipta, samgangna og flutninga. Verkefnin geta t.d. varðað þróun upplýsingatækni sem henta sérstökum aðstæðum á Norður-Atlantssvæðinu eða eru til þess fallin að fjölga störfum í fámennum byggðarlögum eða á jaðarsvæðum.

NORA veitir styrki að hámarki 500.000 danskar krónur á ári og mest til þriggja ára. Skilyrði er að þátttaka sé frá a.m.k. tveimur NORA-löndum.

Á heimasíðu NORA, www.nora.fo  er að finna leiðbeiningar um umsóknarferilinn undir valtakkanum „Guide til projektstøtte“. Umsóknareyðublaðið er einnig að finna á heimasíðu NORA og senda á umsóknina rafrænt til NORA á netfangið noraprojekt@nora.fo

Nánari upplýsingar og ráðgjöf má fá hjá tengilið NORA á Íslandi sem er:  Sigríður K. Þorgrímsdóttir, Byggðastofnun, s. 455 5400 og netfang sigga@byggdastofnun.is

Sjá auglýsingu.


Til baka

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Ártorg 1  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-16:00  | kt. 450679-0389