Fara í efni  

Fréttir

NORA styrkir samstarf á Norður-Atlantssvæðinu

Norræna Atlantssamstarfið (NORA) vill efla samstarf á Norður-Atlantssvæðinu.  Ein leiðanna að þessu markmiði er veiting styrkja tvisvar á ári til samstarfsverkefna með þátttöku að lágmarki tveggja af fjórum aðildarlöndum NORA (Grænlandi, Íslandi, Færeyjum og sjávarbyggðum Noregs).


NORA óskar því eftir verkefnahugmyndum og styrkumsóknum með umsóknarfrest þann 5. mars 2012.

NORA hefur nú kynnt nýja fimm ára skipulagsáætlun sem finna má á heimasíðun NORA, þar sem bent er á meginviðfangsefni á svæðinu og hvar áherslur liggja varðandi verkefnastuðning á tímabilinu 2012-2016:

  • styrkja sterku hliðarnar enn frekar með stuðningi við sjálfbæra þróun efnahagslega mikilvægustu atvinnugreina svæðisins. Það verður gert með því að styrkja nýsköpunarverkefni á sviði sjávarútvegs og auðlinda hafsins. Það geta til að mynda verið verkefni sem snerta aukaafurðir og vannýttar auðlindir.
  • skapa ný tækifæri og efla fjölbreytni svæðisbundinna hagkerfa með því að styðja þróun nýrra atvinnutækifæra, framleiðslu, framleiðsluaðferða og markaðssetningar, t.d. verkefni í ferðaþjónustu, landbúnaði eða verkefni sem varða endurnýjanlegra orkugjafa.
  • sigrast á fjarlægðum, sem er eitt stærsta viðfangsefni á NORA-svæðinu og því verður mætt með því að styrkja verkefni á sviði fjarskipta, samgangna og flutninga og athafnamiðaðra greininga. Verkefnin geta t.d. varðað þróun upplýsingatækni sem henta sérstökum aðstæðum á Norður-Atlantssvæðinu eða eru til þess fallin að fjölga störfum í fámennum byggðarlögum eða á jaðarsvæðum.

Auk þessa hefur NORA áhuga á að efla samstarf við nágranna norðurslóða til vesturs. Þess vegna vill NORA gjarnan styrkja verkefni þar sem um samstarf NORA-landanna við Kanada og skosku eyjarnar er að ræða.  

NORA veitir styrki að hámarki 500.000 danskar krónur á ári og mest til þriggja ára. Skilyrði er að þátttaka sé frá a.m.k. tveimur NORA-löndum.

Á heimasíðu NORA,  er að finna leiðbeiningar um umsóknarferilinn undir valtakkanum „Guide til projektstøtte“. Þá er umsækjendum velkomið að leita til skrifstofu NORA  um nánari upplýsingar og ráðgjöf. Tengiliður á Íslandi er:  Sigríður K. Þorgrímsdóttir, Byggðastofnun, s. 455 5400 og netfangið sigga@byggdastofnun.is

Umsóknareyðublaðið er að finna á heimasíðu NORA og senda á umsóknina rafrænt (á word-formi) til NORA og sömuleiðis útprentaða og undirritaða umsókn með pósti. Fylgigögn, eins og verklýsing og annað ítarefni, sendist rafrænt (á word, excel eða pdf-formi).

Norræna Atlantssamstarfið (NORA) er verkefnasamstarf milli Færeyja, Grænlands, Íslands og strandhéraða Noregs og heyrir undir norrænu ráðherranefndina, sem fjármagnar starfsemina ásamt fjárframlagi þátttökulandanna.

Hér má nálgast auglýsinguna


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389