Fara í efni  

Fréttir

NORA Verkefnastyrkir 2008

NORA auglýsir eftir styrkjum til verkefna á sviði upplýsingatækni og samgangna.

Norræna Atlantsnefndin (NORA) er norrænt verkefnasamstarf milli Færeyja, Grænlands, Íslands og strandhéraða Noregs og heyrir undir norrænu ráðherranefndina, sem fjármagnar starfsemina ásamt fjárframlagi þátttökulandanna. Byggðastofnun rekur skrifstofu NORA á Íslandi og Sigríður K. Þorgrímsdóttir er tengiliður.

Norræna Atlantsnefndin (NORA) styrkir samstarfsverkefni á Norður-Atlantssvæðinu í þeim tilgangi að byggja upp sterkt norrænt svæði og efla sjálfbæra þróun.

Ein af leiðunum að þessu markmiði er að veita styrki tvisvar á ári til samstarfsverkefna. Þátttakendur skulu vera frá a.m.k tveimur af fjórum NORA-löndum (Íslandi, Grænlandi, Færeyjum og strandsvæðum Noregs).

Hér með er auglýst eftir umsóknum og er þetta síðari umsóknarfrestur árið 2008.

Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á verkefni á sviði UPPLÝSINGATÆKNI og SAMGANGNA.

Einnig má sækja um styrki til verkefna sem falla undir eftirtalin svið:

AUÐLINDIR SJÁVAR
FERÐAÞJÓNUSTA

Verkefni sem falla utan þessa ramma geta komið til greina undir yfirskriftinniANNAÐ SVÆÐASAMTARF, ef þau falla að öðru leyti undir markmið NORA.

Umsóknareyðublaðið má finna á heimasíðu NORA, http://www.nora.fo/ og útfyllist á dönsku, norsku eða sænsku og skilist í tölvutæku formi til:

NORA, NORDISK ATLANTSAMARBEJDE
Bryggjubakki 12 • Box 259 • FO-110  Tórshavn • Sími: +298 353110 • Fax: +298 353101

Umsóknir skulu berast NORA í síðasta lagi föstudaginn 6. október 2008.

Frekari upplýsingar veitir Sigríður K. Þorgrímsdóttir, Byggðastofnun, Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki, sími 455 5400,  netfang sigga@byggdastofnun.is 

Jafnframt er að finna upplýsingar á heimasíðu NORA

Auglýsing

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389