Fara í efni  

Fréttir

NPP auglýsir eftir umsóknum

NPP auglýsir eftir umsóknum
Merki NPP

Norðurslóðaáætlun (NPP) auglýsir eftir umsóknum um styrki til forverkefna sem leitt geta til aðalumsóknar í byrjun árs 2014 þegar ný Norðurslóðaáætlun fyrir árin 2014-2020 tekur gildi. 

Tilgangur forverkefna er að:

  • stuðla að gerð sterkra aðalverkefna.
  • stuðla að góðu jafnvægi á milli þátttakenda af svæðinu.
  • stuðla að sameiginlegri verkefnisáætlun.

Lágmarks skilyrði er að tveir þátttakendur séu frá tveimur þátttökulöndum, að verkefnið falli að áherslum áætlunarinnar og að mótframlag til verkefnisins sé tryggt.

Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar er að finna hér.

Áherslur Norðurslóðaáætlunarinnar eru:

Efling nýsköpunar og samkeppnishæfni svæða:

  • Nýsköpun, samstarfsnet, samkeppnishæfni.
  • Bætt aðgengi.

Sjálfbær þróun auðlinda náttúru og samfélags:

  • Umhverfi sem styrkleiki norðurslóða og samhengi nýtingar og verndar.
  • Þróun samstarfs þéttbýlis og dreifbýlis og kynning  arfleifðar.

Til þess að forverkefni geti orðið aðalverkefni í nýrri áætlun þurfa þau einnig að falla að stefnumörkun EU2020 og eru forgangsatriðin;

  • Vöxtur byggður á þekkingu; efling þekkingar og nýsköpunar, aukin fjárfesting í rannsóknum. Hér er m.a. um að ræða menntun yngri kynslóðarinnar og bætt upplýsingasamfélag.
  • Sjálfbær vöxtur; loftslagsmál, græn orka, betri nýting orku og aukin samkeppnishæfni.
  • Þátttaka allra; hærra menntunarstig, barátta gegn fátækt, sem og félagsleg samþætting.

Nánari upplýsingar er að finna hér.

Umsóknarfrestur er til 12. apríl næstkomandi. 

Umsókn skal senda rafrænt á netfangið applications@northernperiphery.eu einnig skal senda undirritaða umsókn og eitt ljósritað eintak til:

Northern Periphery Programme Secretariat
Strandgade 91, 4. sal
DK - 1401
Copenhagen
Denmark

Nánari upplýsingar veitir tengiliður NPP á Íslandi Sigríður Elín Þóðardóttir á netfanginu sigridur@byggdastofnun.is eða í síma 455-5400 .


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389