Fréttir
Nýir verkefnisstjórar í Brothættum byggðum á Vestfjörðum
Bergdís Þrastardóttir er nýr verkefnisstjóri í Brothættum byggðum á Tálknafirði, hún hóf störf í byrjun ágúst. Verkefnið á Tálknafirði er nýhafið og verkefnisstjórn undirbýr nú íbúaþing sem haldið verður 2. og 3. október nk. Bergdís er með doktorspróf í íslenskum miðaldabókmenntum og masterspróf í norrænum fræðum. Hún hefur fjölbreytta reynslu og þekkingu á þróunarvinnu sem frumkvöðull og starfsmaður fyrirtækja og stofnana. Bergdís hefur sinnt verkefna- og viðburðastjórnun, komið að stefnumótun, byggt upp sjálfboðaliðasamtök og verið með mannaforráð.
Bergdís er starfsmaður Vestfjarðastofu og bætist þar við inn í fjölbreyttan starfsmannahóp. Hægt er að hafa samband við Bergdísi á netfangið bergdis@vestfirdir.is.
Guðmundur Konráðsson hefur verið ráðinn til starfa sem verkefnisstjóri í byggðaþróunarverkefninu Fjársjóður fjalla og fjarða í Reykhólahreppi. Hann tekur við góðu búi af Emblu Dögg Bachmann fyrrverandi verkefnisstjóra. Guðmundur er reynslumikill sérfræðingur með áratuga reynslu m.a. á sviði tölvunarfræði, gagnavinnslu og uppbyggingar stafrænna innviða fyrir fyrirtæki og opinberar stofnanir. Hann hefur einnig reynslu af kennslu, leiðsögn, samfélagsverkefnum og skipulagningu viðburða.
Guðmundur hefur þegar hafið störf, hann er með starfsstöð á Reykhólum og er starfsmaður Vestfjarðastofu. Guðmundur er með netfangið gudmundur@vestfirdir.is
Ingibjörg Benediktsdóttir hefur verið ráðin verkefnisstjóri í verkefninu Jú víst! Kraftur í Kaldrana í Kaldrananeshreppi. Hún mun hefja þar störf 1. september næstkomandi. Ingibjörg mun taka við keflinu af Valgeiri Jens Guðmundssyni en hann stýrði verkefninu með myndarbrag fyrsta árið. Ingibjörg er með víðtæka reynslu af stjórnsýslu, s.s. byggða- og samfélagsþróun og hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum í samstarfi við sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki. Hún starfaði síðast hjá Þekkingarneti Þingeyinga. Ingibjörg er m.a. með BA gráðu í nútímafræði, stundaði nám í opinberri stjórnsýslu og vinnur nú að MCM gráðu í áfallastjórnun frá Háskólanum á Bifröst.
Ingibjörg hefur ekki fengið netfang þegar þetta er ritað en það mun án efa birtast á vef Vestfjarðastofu í byrjun september.
Starfsfólk Byggðastofnunar óskar nýjum verkefnisstjórum farsældar í komandi verkefnum og hlakkar til samstarfsins á vettvangi Brothættra byggða. Það er greinilegt að heilmikil þekking, reynsla og mannauður býr í verkefnisstjórunum sem mun án efa stuðla að eflingu samfélaganna.
Verkefnið er ein af aðgerðum Byggðaáætlunar, C.2, og markmið þess er að spornað verði við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarlögum. Verkefnið byggir á samstarfi Byggðastofnunar, viðkomandi sveitarfélags, landshlutasamtaka og síðast en ekki síst íbúa hvers þátttökubyggðarlags. Því er einkum ætlað að styðja við frumkvæði og þátttöku íbúa til hagsbóta fyrir samfélagið í víðum skilningi.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

