Fara í efni  

Fréttir

Opið fyrir styrkumsóknir vegna svæðisbundinnar flutningsjöfnunar

Nú hefur verið opnað fyrir styrkumsóknir vegna svæðisbundinnar flutningsjöfnunar. Lögbundinn lokafrestur umsókna vegna flutningskostnaðar árið 2023 er 31. mars 2024. Athugið að ekki er tekið við umsóknum sem berast eftir þann tíma. Skila þarf umsókn í gegnum eyðublað sem má finna hér.

ATHUGIÐ - Lagabreytingar hafa tekið gildi milli úthlutana ársins 2023 og 2024

Alþingi samþykkti þann 15. desember 2023 breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun. Tvennt hefur nú breyst, styrkhæft hlutfall á svæðum 1 og 2 ásamt því að umsóknir undir ákveðinni fjárhæð verða ekki skertar.

Breyting á endurgreiðsluhlutföllum
Hingað til hafa framleiðendur á svæði 1 getað sótt um 10% endurgreiðslu á flutningskostnaði vöru ef lengd ferðar er a.m.k. 150 km. Það sama hefur átt við um framleiðendur á svæði 2 en því til viðbótar gátu þeir sótt um 20% endurgreiðslu ef lengd ferðar er yfir 390 km. Nú hefur orðið sú breyting á framleiðendur á svæði 1 geta sótt um 10% styrk ef lengd ferðar er 150-390 km en 15% ef lengd ferðar er yfir 390 km. Þá geta framleiðendur á svæði 2 nú sótt um 20% styrk ef lengd ferðar er 150-390 km en 30% ef lengd ferðar er yfir 390 km. Búið er að taka tillit til þessara breytinga í nýju hjálparskjali fyrir 2024.

Breyting á skerðingarreglum
Hingað til hafa allar umsóknir verið skertar hlutfallslega jafn mikið ef samþykktur styrkur er hærri en heildarfjárveiting ársins. Alþingi hefur nú gert þá breytingu að ekki megi lækka styrk fyrir þær umsóknir sem eru undir 1,25% af fjárveitingu ársins og ekki megi heldur lækka samþykktar umsóknir niður fyrir 1,25% af fjárveitingu ársins.

Í ljósi þessara breytinga eru gömul hjálparskjöl úrelt og verður að notast við nýtt hjálparskjal 2024 sem sækja má hér. Eingöngu er búið að breyta útreikningi og bæta smá aðstoð við nýja hjálparskjalið en útlit er eins og árið 2023.

 

Eitt af grunnskilyrðum þess að geta sótt um styrk er að viðkomandi sé annað hvort:

a) Einstaklingur/lögaðili sem skráður er í C-bálk íslensku atvinnugreinaflokkunarinnar
b) Einstaklingur/lögaðili sem framleiðir með ræktun ávexti, blóm eða grænmeti og fullvinnunnur framleiðslu sína í söluhæfar umbúðir enda falli framleiðslan undir flokk 01.1, ræktun nytjajurta annarra en fjölærra, og/eða flokk 01.2, ræktun fjölærra nytjajurta, í A-bálki íslensku atvinnugreinaflokkunarinnar.

Hægt er að kanna skráningu einstaklinga/lögaðila í ÍSAT2008 hjá fyrirtækjaskrá RSK.

Markmið verkefnisins er að styðja við framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni með því að jafna flutningskostnað framleiðenda sem staðsettir eru fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa við skerta samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar en framleiðendur staðsettir nær markaði. Flytja þarf því hálfunna eða fullunna vöru 150 km eða lengra, hvort sem er á sjó, lofti eða landi, á innanlandsmarkað eða að útflutningshöfn til að geta sótt um styrk. 

Nánari upplýsingar um styrkina má finna hér eða senda fyrirspurn á netfangið flutningsjofnun@byggdastofnun.is

 

 


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389