Fréttir
Opið fyrir umsóknir í Sóknarsjóð fyrir smærri fyrirtæki í Grindavík
Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sóknarsjóð fyrir smærri fyrirtæki í Grindavík. Tilgangur Sóknarsjóðs er að styðja við smærri atvinnurekendur í Grindavík með það að markmiði að horfa megi til framtíðar í rekstri.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00, 10. september 2026
Upphaflega voru 180 m.kr. sett í Sóknarsjóð. Í nóvember 2025 fór fram fyrri úthlutun úr sjóðnum og námu samþykktir styrkir 130,4 m.kr. Verður nú eftirstöðvum af þeim fjármunum sem ráðstafað var í verkefnið úthlutað.
Í umsóknum skal m.a. koma fram til hvers styrkurinn er ætlaður og hvernig hann muni koma til með að nýtast til áframhaldandi reksturs.
Styrkhæf eru fyrirtæki sem voru með starfsemi í Grindavík 10. nóvember 2023 og fullnægja að öðru leyti skilyrðum reglna um Sóknarsjóð.
Styrkur er veittur í eftirfarandi tilgangi:
- Styrkur til kaupa á búnaði eða tækjum til að efla starfsemi í Grindavík.
- Styrkur til að gera breytingar á rekstri í því skyni að styrkja stoðir núverandi starfsemi.
Til þess að geta átt rétt á styrk úr sjóðnum skal umsækjandi uppfylla öll eftirfarandi skilyrði:
- Hafa verið með starfsemi í Grindavík 10. nóvember 2023.
- Það hafi a.m.k. einn starfsmann á launaskrá þegar umsókn er skilað.
- Velta vegna ársins 2023 hafi verið undir 250 milljónum kr.
- Umsækjandi sé ekki í vanskilum með opinber gjöld.
- Bú umsækjanda hafi ekki verið tekið til gjaldþrotaskipta.
Umsækjendur geta verið einstaklingar eða fyrirtæki. Hér má finna Reglur um úthlutun Byggðastofnunar á framlögum úr Sóknarsjóði.
Umsóknum skal skilað í rafrænum umsóknarformi í Umsóknargátt Byggðastofnunar.
Nánari upplýsingar um styrki úr sóknarsjóð veitir Pétur Friðjónsson, verkefnastjóri Sóknarsjóðs (peturf@byggdastofnun.is /sími 455 5400)
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015

- 2014

- 2013

- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008

- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember