Fara í efni  

Fréttir

Opið fyrir umsóknir um verkefnastyrki NORA

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um verkefnastyrki NORA – Norræna Atlantssamstarfsins. Um er að ræða síðari úthlutun ársins 2026.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 5. október 2026.

NORA styrkir samstarfsverkefni á Norður-Atlantssvæðinu þar sem þátttakendur koma frá að minnsta kosti tveimur af fjórum aðildarlöndum samstarfsins: Íslandi, Grænlandi, Færeyjum og strandhéruðum Noregs. Umsóknir ættu að taka mið af stefnu NORA fyrir árin 2025–2028. Áherslusvið hennar eru:

  • Aðfanga- og afhendingaröryggi: Verkefni tengd afhendingaröryggi orku, matvælaframleiðslu, vatni og hreinlæti, samgöngum og heilsu.
  • Gervigreind: Tæknilausnir og verkefni sem bæta framleiðni og öryggi, viðhalda eða skapa atvinnu- og búsetutækifæri á strjálbýlum svæðum.
  • Sjálfbær ferðaþjónusta: Áhersla á menningararf og upplifanir.
  • Aðlaðandi samélag: Verkefni sem bæta hag barna, ungmenna og fjölskyldna.
  • Hreyfanleiki og græn skref: Aðgerðir sem efla svæðisbundin atvinnutækifæri, óstaðbundin störf og þekkinarmiðlun milli svæða.
  • Sjávarútvegur og matvælaframleiðsla: Lausnir sem styrkja hagkerfi strandsamfélaga, t.d. verkefni sem endurnýta eða fullnýta aukaafurðir.
  • Silfurhagkerfið: Verkefni sem hlúa að virði og vellíðan eldra fólks og efla samstarf milli kynslóða.

Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem stuðla að nýsköpun, atvinnusköpun, sjálfbærni og sterkari samfélögum á Norður-Atlantssvæðinu.

Verkefnastyrkir NORA eru einkum ætlaðir atvinnu- og viðskiptatengdum verkefnum á frumstigi. Verkefni sem eingöngu snúa að menningu eða rannsóknum falla ekki undir styrkjaáætlunina.

Helstu skilyrði

Til að verkefni komi til greina þurfa að minnsta kosti tveir samstarfsaðilar frá tveimur aðildarlöndum eða -svæðum NORA að standa að umsókn.

  • Gert er ráð fyrir að minnsta kosti 50% mótframlagi.
  • Styrkur frá NORA getur numið allt að 500.000 dönskum krónum á ári og að hámarki 1.500.000 dönskum krónum á þriggja ára tímabili.
  • NORA gerir kröfu um að hafa heimild til að birta og kynna niðurstöður verkefnis á sínum vettvangi.

Ef umsókn uppfyllir ekki þessi skilyrði er henni vísað frá.

Við mat umsókna er meðal annars horft til þess hversu vel verkefnið fellur að áherslum NORA, nýsköpunargildis þess, framkvæmdarhæfni, samstarfs þátttakenda, norræns notagildis og möguleika á áframhaldandi nýtingu niðurstaðna.

Til að eiga möguleika á styrk þurfa verkefni að tengjast yfirmarkmiðum samstarfsins, að efla Norðuratlantssvæðið sem svæði sem einkennist af styrk og þrótti og af sterkri, sjálfbærri efnahagsþróun. Allir geta sótt um styrki; fyrirtæki, opinberar stofnanir og aðrir.

Hér er að finna:

Rafrænt umsóknarform um verkefnastyrki NORA

Leiðbeiningar um styrkumsóknir

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu NORA, https://nora.fo/

ATH! Umsóknarfrestur er til miðnættis 5. október 2026.

Tengiliður NORA á Íslandi er Hanna Dóra Björnsdóttir, hannadora@byggdastofnun.is


Norræna Atlantssamstarfið (NORA) eru samtök fjögurra landa og fellur starfsemin undir byggðastefnu Norrænu Ráðherranefndarinnar. Starfssvæði NORA nær til Grænlands, Íslands, Færeyja og strandhéraða Noregs (níu norskra strandfylka frá Finnmörku í norðri til Rogalands í suðri svo og Svalbarða). Landfræðileg lega, sameiginleg einkenni, viðfangsefni, saga, stofnanir svo og menningarleg bönd tengja NORA-löndin.


Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389