Fara í efni  

Fréttir

Óskað eftir tilnefningum til Landstólpans 2022

Tilnefningar til Landstólpans

Landstólpinn Samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar er viðurkenning sem Byggðastofnun veitir árlega á ársfundi sínum. Um er að ræða hvatningarverðlaun til einstaklinga, fyrirtækja, hópa eða verkefna sem vakið hafa athygli á byggðamálum, styrkt samfélög í landsbyggðunum eða stuðlað að framgangi málefna landsbyggðanna, ýmist í heild eða innan tiltekins byggðarlags, s.s. innan nýsköpunar, byggðaþróunar, atvinnuþróunar, sjálfbærni eða menningar.

Hér með er lýst eftir tilnefningum um handhafa Landstólpans 2022. Dómnefnd velur úr þeim tillögum sem berast.

Hafa má í huga hvort viðkomandi einstaklingur, hópur, fyrirtæki eða verkefni hafi:

  • Stuðlað að jákvæðri og sterkri ímynd landsbyggðanna eða tiltekins svæðis
  • Vakið athygli og aukið umfjöllun um ákveðið svæði eða málefni innan landsbyggðanna
  • Styrkt nærumhverfið, ýmist með aukinni samstöðu íbúa, atvinnutækifærum, aukinni afþreyingu, menningu, þjónustu, verðmætasköpun eða tækifærum af öðru tagi
  • Aukið virkni íbúa og fengið þá til beinnar þátttöku í verkefninu
  • Stuðlað að jákvæðum áhrifum efnahagslegra, samfélagslegra og/eða umhverfislegra þátta

Ekki er nauðsynlegt að öllum þessum atriðum sé fylgt eftir, heldur séu þau höfð til hliðsjónar. Nauðsynlegt er að rökstuðningur fylgi tilnefningunni.

Viðurkenningunni fylgir listmunur hannaður af íslenskum listamanni.

Tillögur sendist á netföngin: helga@byggdastofnun.is eða andri@byggdastofnun.is

Nánari upplýsingar gefa Helga Harðardóttir eða Andri Þór Árnason, s. 455-5400.

Frestur til að koma tillögum til skila rennur út föstudaginn 31. mars 2022

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389