Fréttir
Punktarnir tengdir – 25 ára afmæli Norðurslóðaáætlunarinnar
Ársfundur Norðurslóðaáætlunarinnar sem fram fer í Bodø í Noregi 1. október nk. er helgaður 25 ára afmæli áætlunarinnar. Áhugaverð dagskrá verður frá 30. sept. – 2. okt. sem hefst með því að verkefnisaðilum er gefinn kostur á að hittast og eru þeir hvattir til að nýta sér þetta tækifæri til að funda með samstarfaðilum sínum. Á öðrum degi er fókusinn á sögu áætlunarinnar, árangur og hvernig einstök verkefni hafa haft áhrif á áætlunarsvæðinu. Síðasta daginn verður svo horft til framtíðar, þeirra áskorana sem framundan eru og hvernig samstarfið á svæðinu verði best þróað áfram.
Allar frekari upplýsingar um viðburðinn er að finna á heimasíðu áætlunarinnar en skráningarfrestur er til 17. september. Gistirými á sérkjörum er takmarkað og í boði til 30. júní og því um að gera að tryggja sér það sem fyrst.
Hlekkur með upplýsingum um viðburðinn
Hlekkur á gistingu á sérkjörum
Norðurslóðaáætlunin (Northern Periphery and Arctic Programme) er samstarfsvettvangur Evrópusambandsríkjanna Írlands, Svíþjóðar og Finnlands og svo Noregs, Íslands, Grænlands og Færeyja. Markmið áætlunarinnar er að stuðla að samstarfsverkefnum milli landanna sem miða að því að finna lausnir á sameiginlegum áskorunum á sviði atvinnu- og byggðaþróunar og er núgildandi áætlunartímabil 2021-2027.
Fréttasafn
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015

- 2014

- 2013

- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008

- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember