Fréttir
Ræs! – Síld! Kynning á verkefni meistaranema á ársfundi Byggðastofnunar
Ársfundur Byggðastofnunar verður haldinn fimmtudaginn 28. maí nk. í félagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkjubæjarklaustri. Þar mun Daníel Pétur Daníelsson kynna meistaraverkefni sitt, Ræs! – Síld! Rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði, en verkefnið er eitt af fjórum verkefnum meistaranema sem var styrkt úr Byggðarannsóknasjóði í desember 2024.
Viðfangsefni rannsóknarinnar felst í að skoða sambandið milli Síldarminjasafnsins og nærsamfélagsins með það að markmiði að koma auga á og draga fram hvaða þættir geti styrkt tengslin og aukið aðsókn íbúa. Auk þess að skoða tengsl sjálfbærnimarkmiða Sameinuðu þjóðanna við niðurstöður.
Höfundur greinir frá því að fólk í heimabyggð sé mikilvægur markhópur Síldarminjasafns Íslands og þeirri niðurstöðu rannsóknar að safnið sinni mikilvægu hlutverki í nærsamfélaginu á Siglufirði. Það geti verið brú milli ólíkra hópa í samfélaginu og líka milli fortíðar og nútíðar.
Niðurstaða rannsóknar er að Síldarminjasafnið tengist samfélaginu með fjölbreyttum hætti, þar sem tilfinningaleg tenging, þátttaka, samvera og sameiginleg reynsla skipta lykilmáli. Þar dregur höfundur fram að þeir þættir sem styðja við sterkari tengsl séu m.a. viðburðir sem virkja samfélagið, tenging við arfleið sem veitir stolti og sjálfsmynd rými, opið og aðgengilegt viðmót sem og vilji safnsins til að þróa starfsemi sína með samfélaginu. Ætla megi að niðurstöður rannsóknar geti haft gildi fyrir söfn víðar á Íslandi. Að söfn í landsbyggðunum geti stuðlað að sjálfbærni, félagslegum jöfnuði og samfélagsþátttöku í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Hér má sjá meistararitgerð Daníels Péturs:
Ræs! – Síld! Rannsókn á sambandi Síldarminjasafns Íslands við samfélagið í Siglufirði
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015

- 2014

- 2013

- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008

- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember