Fara í efni  

Fréttir

Hægir á fjölgun ríkisstarfa – mest fjölgun á Suðurlandi

Skjáskot úr mælaborði

Byggðastofnun hefur birt árlega greiningu sína á staðsetningu stöðugilda á vegum ríkisins. Í skýrslunni Hvar eru ríkisstörfin 31.12.2025? má sjá fjölda stöðugilda eftir landshlutum, sveitarfélögum og málaflokkum ráðuneyta. Nánari upplýsingar eru jafnframt aðgengilegar í mælaborði Byggðastofnunar.

Við áramót 2025/2026 voru stöðugildi á vegum ríkisins 29.139 og hafði fjölgað um 103, eða 0,4%, milli ára. Til samanburðar fjölgaði stöðugildum um rúmlega 500 árið 2024 og um tæplega 800 á ári 2022 og 2023.

Flest ríkisstöðugildi eru áfram á höfuðborgarsvæðinu. Þar eru um 70% stöðugildanna en 64% landsmanna. Á árinu 2025 fjölgaði stöðugildum á höfuðborgarsvæðinu þó aðeins um 15 og varð fjölgunin því að stærstum hluta utan höfuðborgarsvæðisins.

Mest fjölgaði stöðugildum á Suðurlandi, um 80 eða 4,4%. Stór hluti fjölgunarinnar varð í Sveitarfélaginu Árborg, þar sem heildarfjöldi stöðugilda jókst um 74. Þar munar mestu um fjölgun hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Næstmest fjölgaði á Norðurlandi eystra, um 68 stöðugildi, þar af 53 á Akureyri. Á móti fækkaði stöðugildum mest á Suðurnesjum. Sú fækkun skýrist fyrst og fremst af breyttu fyrirkomulagi á rekstri fríhafnarverslana á Keflavíkurflugvelli. Töluverð fækkun varð einnig í Hafnarfirði, meðal annars vegna flutnings starfsstöðvar Matvælastofnunar til Reykjavíkur.

Stöðugildi 31.12.2025

Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389