Fara í efni  

Fréttir

Safnasafnið, Sjóræningjahúsið og Við Djúpið

Eyrarrósin, sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður veitt í áttunda sinn á Bessastöðum laugardaginn 18. febrúar næstkomandi. Þrjú verkefni hafa verið valin úr metfjölda umsókna og hljóta tilnefningu til Eyrarrósarinnar í ár: Safnasafnið á Svalbarðsströnd, Sjóræningjahúsið á Vatneyri við Patreksfjörð og tónlistarhátíðin Við Djúpið á Ísafirði.


Handhafi Eyrarrósarinnar hlýtur 1,5 milljón krónur, verðlaunagrip eftir Steinunni Þórarinsdóttur myndhöggvara og flugferðir frá Flugfélagi Íslands. Aðrir tilnefndir hljóta 250 þúsund krónur auk flugferða. Dorrit Moussaieff forsetafrú, verndari Eyrarrósarinnar, afhendir verðlaunin.

Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands. Markmið verðlaunanna er að efla fagmennsku og færni við skipulagningu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Í umsögn valnefndar um verkefnin sem tilnefnd eru segir meðal annars:

  • Safnasafnið – Alþýðulistasafn Íslands stendur við þjóðveg eitt rétt utan við Akureyri, í gamla Þinghúsinu á Svalbarðsströnd. Safnið opnaði árið 1995 og vinnur metnaðarfullt brautryðjendastarf í söfnun og varðveislu á íslenskri alþýðulist. Safnið tengir saman alþýðulist og nútímamyndlist af alúð og kímni og vinnur ávallt í nánu samstarfi við samfélagið í kring.
  • Sjóræningjahúsið á Vatneyri við Patreksfjörð hefur dregið að sér fjölda innlendra og erlendra ferðamanna frá opnun vorið 2008. Í Sjóræningjahúsinu er öflugt tónleikahald, sýning tileinkuð sjóránum við Íslandsstrendur, veitingastaður og sýningaraðstaða fyrir listamenn auk fjölbreyttra menningarviðburða árið um kring.
  • Við Djúpið á Ísafirði hefur skipað sér fastan sess í tónlistarlífi landsins og verður haldin í tíunda sinn á sumarsólstöðum. Hátíðin hefur eflt tónlistarlíf og nýsköpun á Vestfjörðum með metnaðarfullri tónleikadagskrá og einnig er námskeiðahald mikilvægur þáttur í hátíðinni.

Handhafar Eyrarrósarinnar 2011 eru Sumartónleikar í Skálholtskirkju. Önnur menningarverkefni sem hlotið hafa Eyrarrós í hnappagatið eru tónlistarhátíðin Bræðslan, Landnámssetrið í Borgarnesi, rokkhátíðin Aldrei fór ég suður, Strandagaldur á Hólmavík, LungA, listahátíð ungs fólks á Austurlandi og Þjóðlagahátíðin á Siglufirði.

Nánari upplýsingar veita:

  • Steinunn Þórhallsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Listahátíðar s. 862-3242
  • Guðrún Norðfjörð, framkvæmdastjóri Listahátíðar s. 866 6010

Aðstandendur tilnefndra verkefna til Eyrarrósarinnar 2012:

  • Safnasafnið: Níels Hafstein og Magnhildur Sigurðardóttir s. 461-4066
  • Sjóræningjahúsið: Alda Davíðsdóttir yfirsjóræningi s. 845–5366
  • Við Djúpið: Greipur Gíslason, framkvæmdastjóri s. 898-3263

Sjá fréttatilkynningu


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389