Fara í efni  

Fréttir

Samanburður á orkukostnaði heimila árið 2025

Samanburður á orkukostnaði heimila árið 2025
Skjáskot úr mælaborði

Líkt og undanfarin ár hefur Byggðastofnun fengið Umhverfis- og orkustofnun til að reikna út árlegan kostnað við raforkunotkun og húshitun á sömu fasteigninni á flestum þéttbýlisstöðum og í dreifbýli. Viðmiðunareignin er einbýlishús, 140 m² að grunnfleti og 350m³. Almenn raforkunotkun er sú raforka sem er notuð í annað en að hita upp húsnæði, s.s. ljós og heimilistæki, en miðað er við 4.500 kWst í almennri rafmagnsnotkun og 28.400 kWst við húshitun án varmadælu en 14.200 kWst með varmadælu.

Nú er komin út skýrsla um orkukostnað heimila m.v. gjaldskrár 1. september 2025. Alls eru 92 byggðakjarnar í greiningunni og ná tölur fyrir þá aftur til ársins 2014. Samhliða skýrslunni kemur út mælaborð þar sem hægt er að skoða orkukostnað í byggðakjörnum á Íslandskorti, skoða raforku- og húshitunarkostnað sér og bæta við útreikningi fyrir varmadælu fyrir staði með beina rafhitun.

Raforka
Lægsta mögulega raforkuverð fyrir viðmiðunareignina, með flutnings- og dreifingarkostnaði, fæst í þéttbýli hjá HS Veitum, um 115 þ.kr. Hæsta gjald í skilgreindu þéttbýli er um 138 þ.kr. hjá RARIK en raforkuverð eru hærri í dreifbýli, hjá RARIK og Orkubúi Vestfjarða, eða um 154-173 þ.kr. á ári fyrir viðmiðunareign.

Munur milli raforkuverðs í þéttbýli og dreifbýli minnkaði mikið árið 2021 vegna aukins dreifbýlisframlags en bilið hefur breikkað talsvert aftur undanfarin tvö ár. Frá árinu 2023 hefur raforkuverð fyrir viðmiðunareignina hækkað um 5-32%, mest í Grímsey 32% og í dreifbýli hjá RARIK 31%.

Húshitun
Þegar kemur að húshitunarkostnaði er munurinn á milli svæða mun meiri en á raforkuverði. Lægsti mögulegi kostnaður þar sem húshitun er dýrust er ríflega þrefalt hærri en þar sem hún er ódýrust.

Húshitunarkostnaður hefur oftast verið hæstur á stöðum þar sem þarf að notast við beina rafhitun. Lægsta verð fyrir húshitun með rafmagni lækkaði þó talsvert árið 2021, m.a. vegna niðurgreiðslna á dreifi- og flutningskostnaði og aukinnar samkeppni á raforkusölumarkaði. Lækkunin gerði það að verkum að lægsti mögulegi kostnaður fyrir beina rafhitun viðmiðunareignar gat verið lægri en fyrir dýrar hitaveitur. Árin 2021 til 2023 var hæsti húshitunarkostnaður á stöðum með kyntar hitaveitur (fjarvarmaveitur). Rekstur þeirra er erfiðari þegar skerðanleg orka er ekki í boði. Árið 2024 voru niðurgreiðslur til kyntra veitna auknar til að gera húshitunarkostnað sambærilegan við beina rafhitun og nú er húshitunarkostnaður viðmiðunareignar með kyntri veitu almennt lægri en með beinni rafhitun.

Lægsti húshitunarkostnaður fyrir viðmiðunareign er í Brautarholti á Skeiðum 75 þ.kr. og á Flúðum um 87 þ.kr. Hæsti húshitunarkostnaðurinn er í Grímsey um 343 þ.kr., þar sem er olíukynding. Þar fyrir utan er húshitunarkostnaður fyrir viðmiðunareign hæstur 267 þ.kr. á Grenivík og stöðum með beina rafhitun 265 þ.kr.

Heildarorkukostnaður
Heildarorkukostnaður, þ.e.a.s. raforku- og húshitunarkostnaður viðmiðunareignar, er hæstur í Grímsey 529 þ.kr. þar sem rafmagn er framleitt með díselrafstöð og húsin kynt með olíu. Þar fyrir utan er heildarkostnaður hæstur 438 þ.kr. á Bakkafirði og Borgarfirði eystri. Báðir staðirnir eru skilgreindir sem dreifbýli hvað raforkudreifingu varðar af dreifiveitufyrirtækinu sem er RARIK. Þar næst kemur Nesjahverfi í Hornafirði með 420 þ.kr. sem einnig er staður sem skilgreinist sem dreifbýli hjá RARIK, en hefur hitaveitu. Lægsti heildarorkukostnaður landsins er í Mosfellsbæ 224 þ.kr. en þar næst á Flúðum 225 þ.kr.

Nánari upplýsingar má sjá í meðfylgjandi skýrslu.


Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389