Fara í efni  

Fréttir

Samanburður fasteignagjalda heimila árið 2021

Samanburður fasteignagjalda heimila árið 2021
Skjáskot úr mælaborði

Byggðastofnun hefur nú, líkt og undanfarin ár, fengið Þjóðskrá Íslands til að reikna út fasteignamat á sömu viðmiðunarfasteigninni um land allt. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161,1 m² að grunnfleti og 476 m³ á 808 m² lóð. Fasteignagjöld eru reiknuð út af Byggðastofnun samkvæmt álagningarreglum ársins 2021 eins og þær eru í hverju sveitarfélagi, út frá fasteignamatinu sem Þjóðskrá reiknar og gildir frá 31. desember 2020. Til viðbótar við 31 matssvæði sem miðað var við síðustu ár eru 65 ný svæði og eru matssvæðin því 96 talsins.

Nú er komin út skýrsla um fasteignagjöld viðmiðunareignar árið 2021. Samhliða skýrslunni kemur jafnframt út mælaborð þar sem hægt er að skoða fasteignagjöld á korti, punktariti og súluritum.

Fasteignamat
Fasteignamat samanstendur af húsmati og lóðarmati. Heildarfasteignamat viðmiðunareignar er að meðaltali 43,3 m.kr. á matssvæðunum 96 í greiningunni en fasteignamat er mjög mismunandi eftir því hvar á landinu fasteignin er. Fasteignamat viðmiðunareignar er hæst á höfuðborgarsvæðinu eða 73,3 m.kr. að meðaltali á 27 matssvæðum. Utan höfuðborgarsvæðisins er fasteignamat hæst á Akranesi, á Akureyri og í Keflavík. Lægsta meðalfasteignamat landshluta í greiningunni er á Vestfjörðum (12 matssvæði) 20,3 m.kr.

Á 31 matssvæði sem eldri gögn ná yfir hækkaði heildarfasteignamat (m.v. verðlag 2021) að meðaltali um 51% frá 2014 til 2021, mest á 84% á Akranesi og 82% í Keflavík.

Fasteignagjöld
Til fasteignagjalda teljast fasteignaskattur, lóðarleiga, fráveitugjald, vatnsgjald og sorpgjald. Vegna mismunandi álagningarreglna sveitarfélaga eru ekki bein tengsl á milli heildarfasteignamats og heildargjalda. Til dæmis er hæsta fasteignamat viðmiðunareignarinnar í Suður-Þingholtum og á Ægisíðu/í Högum en gjöld eru þó víða hærri. Talsverður munur getur verið á upphæðum fasteignagjalda eftir matssvæðum, bæði milli sveitarfélaga en líka innan sveitarfélaga, t.d. þar sem fasteignamat er mismunandi í byggðakjörnum innan sama sveitarfélags.

Meðaltal heildarfasteignagjalda fyrir viðmiðunareign á öllum 96 matssvæðunum er um 344 þ.kr. árið 2021. Hæsta meðaltal fasteignagjalda viðmiðunareignar er á Suðurlandi 380 þ.kr. (13 matssvæði) og á Suðurnesjum 377 þ.kr. (6 matssvæði) en lægsta meðaltal landshluta er á Vestfjörðum 289 þ.kr. (12 matssvæði).

Þróun fasteignagjalda frá árinu 2014 hefur verið sú að þau hafa víðast hvar hækkað nokkuð en fasteignamat hefur að sama skapi hækkað mikið. Á 31 matssvæði sem eldri gögn ná til var meðaltal heildarfasteignagjalda fyrir viðmiðunareign 289 þ.kr. árið 2014 (m.v. verðlag 2021) en 367 þ.kr. árið 2021 sem samsvarar hækkun um 27%.

Samspil fasteignagjalda og fasteignamats
Þó fasteignagjöld séu ekki í fullkomlega beinu flútti við fasteignamat eru nokkuð sterk línuleg tengsl milli heildarfasteignamats og heildarfasteignagjalda viðmiðunareignarinnar eins og sjá má á punktaritinu hér að neðan. Línan sem dregin er í gegnum punktana 96 er aðhvarfslína og matssvæði þar sem fasteignagjöld eru frábugðin öðrum stöðum með sambærilegt fasteignamat lenda þá langt fyrir ofan eða neðan línuna.

Nánari upplýsingar má sjá í skýrslunni Samanburður á fasteignamati og fasteignagjöldum árið 2021.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389