Fara í efni  

Fréttir

Samanburður fasteignagjalda heimila árið 2023

Samanburður fasteignagjalda heimila árið 2023
Skjáskot úr mælaborði

Byggðastofnun hefur fengið Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) til að reikna út fasteignamat á sömu viðmiðunarfasteigninni um land allt. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161,1 m² að grunnfleti og 476 m³ á 808 m² lóð. Fasteignagjöld eru reiknuð út af Byggðastofnun samkvæmt álagningarreglum ársins 2023 eins og þær eru í hverju sveitarfélagi, út frá fasteignamatinu sem HMS reiknar og gildir frá 31. desember 2022. Útreikningar voru gerðir fyrir 103 matssvæði í 50 sveitarfélögum.

Nú er komin út skýrsla um fasteignagjöld viðmiðunareignar árið 2023. Samhliða skýrslunni hefur mælaborð verið uppfært með nýjustu gögnum.

Fasteignamat
Heildarfasteignamat (húsmat og lóðarmat) viðmiðunareignar er að meðaltali 55,8 m.kr. en fasteignamat er mjög mismunandi eftir því hvar á landinu fasteignin er. Fasteignamat viðmiðunareignar í greiningunni er hæst á höfuðborgarsvæðinu eða 98,7 m.kr. að meðaltali. Utan höfuðborgarsvæðisins er fasteignamat hæst á Akureyri, í Hveragerði og á Selfossi. Lægsta meðalfasteignamat landshluta er á Vestfjörðum 30,6 m.kr. og á Austurlandi 31,6 m.kr.

Samkvæmt Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hækkaði heildarfasteignamat íbúðareigna um 23,6% milli áranna 2022 og 2023 en það skal tekið fram að í nýútkomnu fasteignamati fyrir árið 2024 sem verður notað við álagningu gjalda næsta árs hækkaði heildarfasteignamat íbúða enn frekar, eða um 13,7%.

Mesta hlutfallslega hækkun fasteignamats viðmiðunareignar frá 2022 til 2023 var á Laugarvatni 45,1% en þar næst á Eyrarbakka 43,6%, á Selfossi 39,5%, Raufarhöfn 39,3% og Bíldudal 39,2%.

Fasteignagjöld
Til fasteignagjalda teljast fasteignaskattur, lóðarleiga, fráveitugjald, vatnsgjald og sorpgjöld. Sorpgjöld eru ekki höfð inni í samanburði á fasteignagjöldum að þessu sinni vegna þess hve mismunandi aðferðum sveitarfélögin hafa beitt í álagningu sorpgjalda eftir innleiðingu svokallaðra „hringrásarlaga“.

Meðaltal heildarfasteignagjalda (án sorpgjalda) fyrir viðmiðunareign er um 350 þ.kr. árið 2023. Hæsta meðaltal fasteignagjalda viðmiðunareignar er á Suðurlandi 386 þ.kr. og á Vesturlandi 366 þ.kr. en lægsta meðaltal landshluta er á Austurlandi 320 þ.kr.

Meðaltal fasteignagjalda viðmiðunareignar hækkaði um 14,1% milli ára. Mesta hlutfallslega hækkun fasteignagjalda viðmiðunareignar varð á Vestfjörðum eða að meðaltali 23,2% og þar næst á Norðurlandi vestra 20,8%. Þessir tveir landshlutar eru einu landshlutarnir þar sem meðalfasteignagjöld viðmiðunar­eignarinnar hækkuðu álíka mikið og meðalfasteignamat hennar, en þau hækkuðu mun minna í öðrum landshlutum þó fasteignamat hafi hækkað álíka mikið.

Samspil fasteignagjalda og fasteignamats
Þó fasteignagjöld séu ekki í fullkomlega beinu flútti við fasteignamat eru nokkuð sterk línuleg tengsl milli heildarfasteignamats og heildarfasteignagjalda viðmiðunareignarinnar eins og sjá má á punktaritinu hér að neðan. Línan sem dregin er í gegnum punktana 103 er aðhvarfslína og matssvæði þar sem fasteignagjöld eru frábugðin öðrum stöðum með sambærilegt fasteignamat lenda þá langt fyrir ofan eða neðan línuna.

Nánari upplýsingar má sjá í skýrslunni Samanburður á fasteignamati og fasteignagjöldum árið 2023.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389