Fréttir
Samanburður fasteignagjalda heimila árið 2024
Byggðastofnun hefur fengið Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) til að reikna út fasteignamat á sömu viðmiðunarfasteigninni um land allt. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161,1 m² að grunnfleti og 476 m³ á 808 m² lóð. Fasteignagjöld eru reiknuð út af Byggðastofnun samkvæmt álagningarreglum ársins 2024 eins og þær eru í hverju sveitarfélagi, út frá fasteignamatinu sem HMS reiknar og gildir frá 31. desember 2023. Útreikningar voru gerðir fyrir 103 matssvæði í 49 sveitarfélögum.
Nú er komin út skýrsla um fasteignagjöld viðmiðunareignar árið 2024. Samhliða skýrslunni hefur mælaborð verið uppfært með nýjustu gögnum.
Fasteignamat
Heildarfasteignamat (húsmat og lóðarmat) viðmiðunareignar er að meðaltali 63,2 m.kr. en fasteignamat er mjög mismunandi eftir því hvar á landinu fasteignin er. Fasteignamat viðmiðunareignar í greiningunni er hæst á höfuðborgarsvæðinu eða 111,3 m.kr. að meðaltali. Utan höfuðborgarsvæðisins er fasteignamat hæst á Akureyri, á Akranesi, í Keflavík og í Hveragerði. Lægsta meðalfasteignamat landshluta er á Vestfjörðum 37,0 m.kr. og á Austurlandi 38,1 m.kr.
Samkvæmt Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hækkaði heildarfasteignamat íbúðareigna um 13,7% milli áranna 2023 og 2024. Mesta hlutfallslega hækkun fasteignamats viðmiðunareignar frá 2023 til 2024 var á Seyðisfirði 46,4% en þar næst á Þingeyri 39,5%, í Höfnum 38,7% og á Patreksfirði 38,0%.
Fasteignagjöld
Til fasteignagjalda teljast fasteignaskattur, lóðarleiga, fráveitugjald, vatnsgjald og sorpgjöld. Sorpgjöld eru ekki höfð inni í samanburði á fasteignagjöldum að þessu sinni vegna þess hve mismunandi aðferðum sveitarfélögin hafa beitt í álagningu sorpgjalda eftir innleiðingu svokallaðra „hringrásarlaga“.
Meðaltal heildarfasteignagjalda (án sorpgjalda) fyrir viðmiðunareign er um 392 þ.kr. árið 2024. Hæsta meðaltal fasteignagjalda viðmiðunareignar er á Suðurlandi 455 þ.kr. og Suðurnesjum 420 þ.kr. en lægsta meðaltal landshluta er á Vestfjörðum 348 þ.kr. Meðaltal fasteignagjalda viðmiðunareignar hækkaði um 12,7% milli ára. Mesta hlutfallslega hækkun fasteignagjalda viðmiðunareignar varð á Suðurnesjum eða að meðaltali 21,3% og þar næst á Austurlandi 18,4%.
Samspil fasteignagjalda og fasteignamats
Þó fasteignagjöld séu ekki í fullkomlega beinu flútti við fasteignamat eru nokkuð sterk línuleg tengsl milli heildarfasteignamats og heildarfasteignagjalda viðmiðunareignarinnar eins og sjá má á punktaritinu hér að neðan. Línan sem dregin er í gegnum punktana 103 er aðhvarfslína og matssvæði þar sem fasteignagjöld eru frábugðin öðrum stöðum með sambærilegt fasteignamat lenda þá langt fyrir ofan eða neðan línuna.
Nánari upplýsingar má sjá í skýrslunni Samanburður á fasteignamati og fasteignagjöldum árið 2024.
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember