Fara í efni  

Fréttir

Fasteignagjöld víðast hækkað umfram verðlag

Skjáskot úr mælaborði

Byggðastofnun hefur gefið út skýrslu um fasteignagjöld viðmiðunareignar árið 2026. Samhliða skýrslunni hefur mælaborð stofnunarinnar verið uppfært með nýjustu gögnum.

Fasteignagjöld viðmiðunareignar hafa víðast hvar hækkað talsvert á síðustu árum. Frá árinu 2021 hefur meðalfasteignamat viðmiðunareignar á matssvæðunum 103 í greiningunni hækkað um 81% að nafnvirði, úr 41 m.kr. í 75 m.kr. Á sama tíma hafa meðalfasteignagjöld viðmiðunareignar hækkað um 60%, en verðlag um 36%.

Árið 2025 voru fasteignagjöld viðmiðunareignar í fyrsta sinn að meðaltali hærri á matssvæðum á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu, þrátt fyrir að fasteignamat sé almennt mun hærra á höfuðborgarsvæðinu. Sú staða er enn uppi árið 2026 þó munurinn hafi minnkað lítillega.

Meðaltal fasteignagjalda fyrir viðmiðunareign var 535,6 þ.kr. árið 2026, samanborið við 502,4 þ.kr. árið 2025. Hækkunin milli ára nemur 6,6%. Mesta hlutfallslega hækkun fasteignagjalda varð á höfuðborgarsvæðinu, eða 8,1%, og þar næst á Vesturlandi 6,9%. Minnst var hækkunin á Norðurlandi vestra 3,6%.

Heildarfasteignagjöld viðmiðunareignar árið 2026 eru hæst á matssvæðunum tveimur á Seltjarnarnesi, 795 og 797 þ.kr. Þar á eftir koma Egilsstaðir, Selfoss, Borgarnes, Laugarvatn og Sauðárkrókur. Lægstu gjöld fyrir viðmiðunareign eru á Raufarhöfn 219 þ.kr., Kópaskeri 254 þ.kr. og Bakkafirði 263 þ.kr.

Fasteignagjöld viðmiðunareignar eru reiknuð út af Byggðastofnun samkvæmt álagningarreglum ársins 2026 eins og þær eru í hverju sveitarfélagi. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161,1 m² að grunnfleti og 476 m³ á 808 m² lóð. Fasteignamat viðmiðunareignarinnar á hverju svæði er reiknað út af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars apríl maí
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389