Fara í efni  

Fréttir

Sautján sóttu um stöðu sérfræðings

Sautján sóttu um starf sérfræðings í loftslagsmálum hjá Byggðastofnun en starfið er óstaðbundið sem er í samræmi við byggðastefnu stjórnvalda.

Sigríður Elín Þórðardóttir forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar, segir þennan málaflokk mjög mikilvægan og brýnt að búa til vegvísi og aðgerðaráætlun um hvernig sveitarfélög um allt land geti brugðist við nýjum áskorunum og verkefnum vegna breytinga í umhverfi okkar vegna áhrifa loftslagsbreytinga. Hún segir fjölda umsókna um starfið endurspegla vaxandi þörf á að grípa þurfi til aðgerða fljótt og margir mjög hæfir umsækjendur hafi boðið fram krafta sína.  

Verkefnið sem um ræðir er til tveggja ára og er samstarfsverkefni umhverfis, -orku-og loftslagsráðuneytis, Byggðastofnunar, Veðurstofu Íslands og Skipulagsstofnunar og verður einnig unnið í nánu samstarfi við aðrar stofnanir og hagaðila. Það snýst um að skapa skýran farveg og ferla fyrir íslensk sveitarfélög þegar kemur að mótun aðlögunaraðgerða og þannig hámarka aðlögunargetu þeirra gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga og lágmarka um leið efnahagslegt tjón og neikvæð áhrif loftslagsbreytinga á íslenskar byggðir, atvinnuvegi, innviði, samfélög og byggðaþróun. 

Fimm íslensk sveitarfélög taka þátt í verkefninu sem hvert um sig er að takast á við ólík verkefni vegna loftslagsáhrifa.

Ragnhildur Friðriksdóttir sérfræðingur Byggðastofnunar í loftslagsmálum sem mun leiða verkefnið segir sveitarfélög um alla Evrópu finna fyrir áhrifum loftslagsbreytinga og séu aðgerðir, fjármögnun og hlutverk sveitarstjórnarstigsins að verða eitt af lykilviðfangsefnum þegar kemur að aðlögun ríkja og samfélaga að áhrifum loftslagsbreytinganna.

umhverfi

“Það er brýnt að ræða og skilgreina fjármögnun og hlutverkaskipti milli ríkisstjórna og sveitarfélaga en ekki síður að þróa og sannreyna aðferðir og ferla sem nýtast til þess að móta aðlögunaraðgerðir.  Þetta er meira aðkallandi nú en nokkru sinni fyrr”. segir Ragnhildur.

Verkefnið fer af stað innan sveitarfélaganna fimm í haust og verður rýnt í áhrif loftslagsbreytinga innan íslenskra sveitarfélaga, s.s. skriðuföll, þurrka, gróðurelda, óstöðugar hlíðar og ofsaveður og aðgerðir til varnar. Sveitarfélögin sem um ræðir eru Akureyrarbær, Fjallabyggð, Sveitarfélagið Hornafjörður, Reykhólahreppur og Reykjanesbær.

Verið er að fara yfir umsóknirnar sautján og verður haft samband við alla sem sóttu um.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389