Fara í efni  

Fréttir

Sérfræðingur í áhættustýringu - óstaðbundið starf

Viltu gegna lykilhlutverki í eftirliti með áhættustefnu og innra eftirliti hjá Byggðastofnun?

Við leitum að öflugum sérfræðingi til að annast áhættueftirlit og taka virkan þátt í þróun áhættustýringar stofnunarinnar. Starfið er fjölbreytt og faglega krefjandi en gefandi. Það felur m.a. í sér tækifæri til að hafa áhrif á þróun stjórnarhátta, mótun innra starfs og verkferla hjá stofnuninni. Starfið heyrir undir forstöðumann rekstrarsviðs og að hluta undir forstjóra.

Helstu verkefni

  • Gerð og eftirfylgni áhættustefnu Byggðastofnunar skv. verklagsreglum.
  • Gerð áhættuskýrslna og skýrslugjöf til stjórnar.
  • Skýrslugjöf til eftirlitsaðila og annarra hagaðila.
  • Umsjón með afskriftarsjóði útlána.
  • Þátttaka í gerð ársreiknings og árshlutauppgjörs.
  • Þróun og eftirfylgni innra eftirlits og tengdra verkferla.
  • Eftirfylgni með breytingum á regluverki um fjármálastofnanir og mat á áhrifum þeirra á starfsemi stofnunarinnar.

Starfið býður upp á

  • Áhrif á þróun áhættustýringar og stjórnarhátta hjá Byggðastofnun.
  • Sjálfstætt og fjölbreytt sérfræðistarf.
  • Samstarf við stjórnendur og aðkoma að upplýsingagjöf til stjórnar.
  • Tækifæri til að þróa verklag, greiningar og innra eftirlit.
  • Fjölskylduvænt starfsumhverfi og möguleika á að sinna starfinu hvar sem er á landinu, utan vinnusóknarsvæðis höfuðborgarsvæðisins.

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf á sviði viðskiptafræði, hagfræði, fjármála eða reikningshalds.
  • Góður skilningur á fjármálum og góð greiningarhæfni.
  • Reynsla af greiningarvinnu og færni í Excel eru skilyrði.
  • Hæfni til að setja flóknar upplýsingar fram á skýran og hnitmiðaðan hátt.
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
  • Hæfni til að forgangsraða verkefnum, halda yfirsýn og skila vandaðri vinnu innan tímamarka.

Umsókn og ráðning

Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og staðfesting á prófgráðum ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur. 

Starfsaðstaða er í nýjum húsakynnum Byggðastofnunar á Sauðárkróki.  Þó er mögulegt að sinna starfinu frá annarri starfsstöð utan vinnusóknarsvæðis höfuðborgarsvæðisins.  Umsækjendur skulu tilgreina ósk um staðsetningu í umsókn sinni.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. 

Starfshlutfall er 100%.

Umsókn skal skilað í umsóknargátt á heimasíðu Byggðastofnunar, byggdastofnun.is. Þar má einnig finna nánari upplýsingar um stofnunina.

Umsóknarfrestur er til og með 18. september 2026.

Nánari upplýsingar veita:

Arnar Már Elíasson, forstjóri Byggðastofnunar, arnar@byggdastofnun.is 455 5400

Magnús Helgason, forstöðumaður rekstrarsviðs, magnus@byggdastofnun.is  455 5400

 


Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389