Fara í efni  

Fréttir

Síðari úthlutun NORA á árinu 2010

Á fundi sínum í desember ákvað framkvæmdastjórn NORA að styrkja fjögur verkefni. Að þessu sinni bárust 25 umsóknir, sem er umtalsvert færra en við fyrri úthlutun þar sem umsóknir voru 42 talsins. Af þessum 25 umsóknum voru íslenskir aðilar að 23 og Íslendingar taka þátt í öllum þeim verkefnum sem hljóta styrk og leiða eitt þeirra. Til úthlutunar voru rúmar 1,2 milljónir danskra króna, eða tæpar 25 m.kr. íslenskra.

Verkefnin sem styrk hlutu að þessu sinni eru:

Fiskeldi til framtíðar. Greining á land-eldisstöðvum og árangri þeirra með það í huga að þróa nýja "kynslóð" eldisstöðva á landi (fyrir lax- og bleikjueldi). Noregur leiðir verkefnið, en íslenskir þátttakendur eru Hólaskóli, Matís og Íslensk matorka.

Sjávarútvegstengd ferðaþjónusta. Úttekt á gildandi reglum sem snerta þessa grein ferðaþjónustu og yfirlit yfir greinina. Noregur leiðir þetta verkefni, en íslenskur þátttakandi er Þróunar- og rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri.

El-mobility, tilraunaverkefni, prófun rafbíla. Reynsluakstur á að vera á Íslandi og Grænlandi. Nýorka leiðir þetta verkefni, en aðrir íslenskir þátttakendur eru Orkustofnun og Orkusetur.

Öryggi á hafinu. Kortleggja á björgunarstarf á hafi á Norður-Atlantssvæðinu, efla samstarf og þekkingaryfirfærslu. Íhuga viðbrögð við aukinni skipaumferð um Norður-Íshaf. Skipuleggja björgunarstarf á hafinu og bæta það. Noregur leiðir verkefnið, en íslenskir þátttakendur eru Landhelgisgæslan og Siglingastofnun.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389