Fara í efni  

Fréttir

Slökunarpúðinn Friður og ró rýkur út

“Hörfræ og lavender er galdurinn bakvið áhrif slökunarpúðans sem hægt er að nota í amstri dagsins til að minnka spennu og stress” segir frumkvöðullinn Solveig Friðriksdóttir á Stöðvarfirði sem brennur fyrir því að fólk átti sig á því hvað það er mikilvægt að taka stundum hvíld frá önnum dagsins. Solveig hefur tekið þátt í verkefninu Sterkari Stöðvafjörður sem er eitt verkefna Brothættra byggða sem Byggðastofnun leiðir.

Hún sótti um styrk til verkefnisins og fékk til kaupa á góðri saumavél og til markaðssetningar á púðunum. 

friður og ró

“Þyngdin á hörfræjunum og ilmurinn af lavender hjálpar þér við að slaka á. Þú leggur hann yfir enni og augu og tekur smá pásu í amstri dagsins eða hefur hann við koddann og skellir honum á áður en þú ferð að sofa, best að kæla hann fyrir notkun. Það er svo oft mikil spenna við augnsvæðið” segir Solveig og bætir við að fólk sem kaupi púðann geti óskað eftir að fá kennslumyndband um slökun.  

Solveig hyggur á námskeið um hvernig hægt er að takast á við stress með slökun og er allar upplýsingar að finna á Instagramsíðu hennar Friði og ró og á síðunni á Facebókinni.  

Verkefnið hlaut bæði styrk úr Sterkum Stöðvarfirði og Uppbyggingarsjóði Austurlands. 

Byggðastofnun veitir árlega styrki til samfélagsverkefna á vegum verkefnisins Brothættra byggða. Markmið Brothættra byggða er að stöðva viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðakjörnum og sveitum landsins. Verkefnið fagnar nú 10 ára afmæli og af því tilefni verður afmælishátíð Brothættra byggða haldin á Raufarhöfn þann 5. október næstkomandi. 

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl maí
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389