Fara í efni  

Fréttir

Sóknaráætlanir landshluta – greinargerð fyrir árin 2020 - 2024

Út er komin greinargerð um sóknaráætlanir landshluta fyrir árin 2020 - 2024. Í þessari greinargerð Byggðastofnunar og stýrihóps Stjórnarráðsins um byggðamál er gerð grein fyrir ráðstöfun fjárframlaga til sóknaráætlunarsamninga og framkvæmd þeirra á samningstímabilinu 2020 - 2024.

Innviðaráðuneytið, Byggðastofnun og stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál fylgjast vel með framkvæmd sóknaráætlanasamninga og birtir Byggðastofnun árlega greinargerð þar sem gert er grein fyrir framvindu og ráðstöfun fjármuna fyrir liðið ár. Í lok hvers fimm ára samningstímabils er unnin greinargerð þar sem farið er yfir fimm ára tímabil sóknaráætlanasamninga.

Í greinargerðinni kemur m.a. fram að á samningstímanum  var 5,96 milljörðum króna varið til sóknaráætlana. Þar af komu um 5 milljarðar frá ríkinu. Fjármunum er fyrst og fremst varið til áhersluverkefna og uppbyggingarsjóða landshlutanna.

Sóknaráætlanir landshluta eru stefnumótandi áætlanir sem taka til starfssvæða landshlutasamtaka sveitarfélaga og eru sameiginlegt verkefni ráðuneyta og sveitarfélaga. Í þeim sameinast heimamenn um framtíðarsýn, markmið, forgangsröðun verkefna og leiðir til að áætlunin nái fram að ganga. Markmið sóknaráætlana er að ráðstafa fjármunum sem varið er til verkefna í einstökum landshlutum á sviði samfélags- og byggðamála, samkvæmt svæðisbundnum áherslum. Markmið með samningum er að stuðla að jákvæðri samfélags- og byggðaþróun, treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni hvers landshluta og þar með landsins alls. Markmiðið er einnig að einfalda samskipti ríkis og sveitarfélaga og tryggja gagnsæi við úthlutun og umsýslu þeirra opinberu fjármuna sem til þeirra er varið. Landshlutasamtök sveitarfélaga vinna sóknaráætlun á sínu starfssvæði og bera ábyrgð á framkvæmd hennar.

Greinargerðina er að finna hér 


Sóknaráætlanir landshluta eru stefnumótandi áætlanir sem taka til starfssvæða landshlutasamtaka sveitarfélaga. Með Sóknaráætlunum landshluta færist ákvarðanataka og ábyrgð heim í hérað. Heimamenn sameinast um framtíðarsýn, markmið, forgangsröðun verkefna og leiðir til að áætlunin nái fram að ganga. Markmiðið er að auka samkeppnishæfni, treysta stoðir menningar og stuðla að jákvæðri samfélags- og byggðaþróun.


Til baka

Fréttasafn

2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389