Fara í efni  

Fréttir

Sóknaráætlanir landshluta – Ráðning verkefnisstjóra

Sóknaráætlanir landshluta er eitt af samvinnuverkefnum Stjórnarráðsins, unnið út frá framtíðarsýn og stefnu ríkisstjórnarinnar, Ísland 2020. Markmiðið með sóknaráætlunum landshluta er að stuðla að umbótum í úthlutun almannafjár, framförum í samskiptum stjórnsýslustiga og nýsköpun í opinberri stjórnsýslu. Leiðin að þessum markmiðum er að endurskipuleggja fjárframlög ríkissjóðs til landshluta og um leið að einfalda úthlutun þeirra.

Hingað til hafa sérfræðingar allra ráðuneyta í gegnum stýrinet þeirra sinnt verkefninu. Nú hefur  Hólmfríður Sveinsdóttir, stjórnsýslufræðingur verið ráðin sem verkefnisstjóri verkefnisins að undangenginni auglýsingu.  Hólmfríður er ráðin sem starfsmaður Byggðastofnunar en með aðsetur í  Arnarhvoli og vinnur náið með stýrineti ráðuneyta. Hólmfríður er menntaður stjórnsýslufræðingur og býr að mikilli reynslu á sviði byggða- og sveitarstjórnarmála auk þess sem hún þekkir vel til í stjórnsýslunni.

Eitt megin verkefni Hólmfríðar verður að styðja við landshlutasamtökin við gerð sóknaráætlana landshluta  þar sem stefnumörkun og áherslur landshluta á sviði atvinnulífs og samfélags í hverjum landshluta koma fram. Verkefnisstjóri  mun vinna með öllum landshlutum og aðstoða þá við að ljúka við drög að sóknaráætlunum fyrir árslok 2012. Verkefnisstjóri ásamt fulltrúum úr stýrineti mun heimsækja alla landshluta fyrir sumarið og styðja við vinnu landshlutasamtakanna að gerð sóknaráætlana og framkvæmd.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389