Fara í efni  

Fréttir

Strandveiðar og byggðakvótar: Verður auknum umsvifum í strandveiðum og byggðakvótum vart í auknum atvinnutekjum eða útsvarstekjum viðkomandi sveitarfélaga?

Strandveiðar og byggðakvótar: Verður auknum umsvifum í strandveiðum og byggðakvótum vart í auknum atvinnutekjum eða útsvarstekjum viðkomandi sveitarfélaga?
Frá höfninni í Bolungarvík

Rannsóknasetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst hefur lokið rannsókn og birt skýrslu um strandveiðar og byggðakvóta. Rannsóknin var styrkt af Byggðarannsóknasjóði vorið 2025 og unnin af Vífli Karlssyni og Sveini Agnarssyni.

Í skýrslunni er fyrst fjallað stuttlega um sjávarútveg almennt en síðan varpað ljósi á þróun sjávarútvegs og samfélags í þeim sveitarfélögum sem hafa notið einhverra þeirra byggðaaðgerða sem tilteknar eru í lögum um stjórn fiskveiða, en það eru almennur og sértækur byggðakvóti, línuílvilnun, skel- og rækjubætur og strandveiði. Þessar aðgerðir hafa til samans verið kallaðar byggðapottar.

Tveimur meginaðferðum var beitt við rannsóknina; lýsandi greiningu og aðhvarfsgreiningu. Gögnin sem liggja til grundvallar rannsókninni koma frá Fiskistofu, Vinnumálastofnun, Hagstofu Íslands, Byggðastofnun, Vegagerðinni og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Stuðst var við yfirgripsmikið gagnasafn á tímabilinu 2008-2024 og horft til margra hagvísa sem spegla staðbundna efnahagslega þróun, s.s. útsvarstekna sveitarfélaga, atvinnutekna (miðgildis), misskiptingar (staðalfrávik atvinnutekna), atvinnuleysis, íbúaþróunar, búferlaflutninga, íbúðaverðs og fjölda seldra íbúða.  

Niðurstöðurnar gefa til kynna að sértæki byggðakvótinn sýni skýrustu merki um jákvæð staðbundin efnahagsleg áhrif af hverju tonni sem ráðstafað er innan kerfisins. Jákvæð fylgni er á milli útsvarstekna, atvinnutekna, lægra atvinnuleysis, íbúaþróunar og fjölda seldra íbúða. Þar á eftir komu skeldýrabætur og þá almenni byggðakvótinn. Línuívilnun og strandveiði virðast hafa minni jákvæð áhrif; í raun gefa vísbendingarnar til kynna að áhrifin hafi fremur verið neikæð en jákvæð.

Höfundar benda á að niðustöðurnar hefðu mátt vera einhlítari og telja mikilvægt að rannsókn á þessu verði haldið áfram en að hana þurfi jafnframt að þróa.

Sjá nánar rannsóknarskýrsluna í heild sinni: Strandveiðar og byggðakvótar

Umfjöllun um rannsóknina er einnig að finna á vef Háskólans á Bifröst: Sértæki byggðakvótinn skilar sterkustu vísbendingunum um jákvæð byggðaáhrif


Byggðarannsóknasjóður hefur það að markmiði að veita styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem stuðlað geta að jákvæðri byggðaþróun og bætt þekkingargrunn sem nýtist við stefnumótun, áætlanagerð og aðgerðir á sviði byggðamála. 

 

 

 


Til baka

Fréttasafn

2026
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389