Fréttir
Styrkir úr Byggðarannsóknasjóði 2025
21 maí, 2025
Á ársfundi Byggðastofnunar sem haldinn var á Breiðdalsvík nýverið voru veittir fimm styrkir úr Byggðarannsóknasjóði. Styrkirinir eru fjármagnaðir af fjárlagalið byggðaáætlunar og með framlagi frá Byggðastofnun. Til úthlutunar voru 17,5 m.kr.
Stjórn Byggðarannsóknasjóðs ákvað að styrkja eftirfarandi fimm verkefni:
- Strandveiðar og byggðakvótar: Verður auknum umsvifum í strandveiðum og byggðakvótum vart í auknum atvinnutekjum eða útsvarstekjum viðkomandi sveitarfélaga? Styrkupphæð: 3.300.000 kr. Styrkþegi er Rannsóknasetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum við Háskólann á Bifröst, Vífill Karlsson.
- Tvíeggjað sverð – leki óstaðbundinna starfa til höfuðborgarsvæðisins. Syrkupphæð: 3.960.000 kr. Styrkþegi er Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, Hjalti Jóhannesson.
- Skipulag sjálfbærrar landbúnaðarframleiðslu á Íslandi. Styrkupphæð: 4.000.000 kr. Styrkþegi er Salvör Jónsdóttir, Háskóla Íslands.
- Samvinna og samræming áfangastaðastofa og sveitarfélaga um sjálfbæra ferðamálaþróun. Styrkupphæð: 3.736.800 kr. Styrkþegar eru Anna Karlsdóttir og Íris Hrund Halldórsdóttir, Háskóla Íslands.
- Erlendar fjárfestingar í jörðum á Íslandi. Sýn á áhrif á þróun byggða og samheldni íbúa. Styrkupphæð: 2.410.000 kr. Styrkþegar eru Anna Karlsdóttir og Magnfríður Júlíusdóttir, Háskóla Íslands.
Nánari upplýsingar um hvert og eitt verkefni verða birtar á næstunni.
Byggðarannsóknasjóður hefur það að markmiði að veita styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem stuðlað geta að jákvæðri byggðaþróun og bætt þekkingargrunn sem nýtist við stefnumótun, áætlanagerð og aðgerðir á sviði byggðamála. Auglýsing um styrki til byggðarannsókna var birt 22. janúar með umsóknarfrest til 3. mars. Alls bárust 21 umsókn.
Fréttasafn
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015

- 2014

- 2013

- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008

- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember