Fréttir
Atvinnutekjur á íbúa áfram hæstar á Austurlandi og höfuðborgarsvæði
Árið 2024 voru atvinnutekjur á hvern íbúa um 6 milljónir króna í Garðabæ, Fjarðabyggð og á Seltjarnarnesi en um 4 m.kr. í Húnavatnssýslum og Borgarfirði/Dölum.
Þó atvinnutekjur í Fjarðabyggð hafi áfram verið með þeim hæstu á landinu drógust heildaratvinnutekjur þar saman um 6% árið 2024. Álíka samdráttur varð í atvinnutekjum í Vestmannaeyjum. Hvort tveggja eru þetta svæði þar sem sjávarútvegur er veigamikil atvinnugrein, en atvinnutekjur bæði í fiskveiðum og fiskvinnslu voru töluvert minni en árið 2023.
Þetta má m.a. lesa um í skýrslu sem birt er í dag um tekjur einstaklinga eftir svæðum 2008-2024. Gögn eru fengin af vef Hagstofu
Heildartekjur einstaklinga námu 2.872 milljörðum króna árið 2024. Með heildartekjum er átt við samanlagðar atvinnutekjur, lífeyrisgreiðslur, fjármagnstekjur, bætur frá Tryggingastofnun og Sjúkratryggingum, atvinnuleysisgreiðslur, fæðingarorlofsgreiðslur, fjárhagsaðstoð sveitarfélaga og aðrar staðgreiðsluskyldar tekjur. Atvinnutekjur voru 1.992 milljarðar og er opinber stjórnsýsla, fræðslustarfsemi, heilbrigðis-og félagsþjónusta stærsta atvinnugreinin með um 611 milljarða eða tæp 31%. Hlutdeild atvinnutekna í heildartekjum er nokkuð mismunandi milli landshluta. Á Austurlandi og Suðurnesjum voru atvinnutekjur 74% heildartekna einstaklinga en lægsta hlutdeild atvinnutekna var 67% á Suðurlandi og Norðurlandi vestra.
Hlutdeild atvinnugreina í atvinnutekjum er töluvert ólík milli landshluta og enn fjölbreyttari ef horft er á tekjusvæði eða sveitarfélög. Framleiðsla án fiskvinnslu var áfram mikilvægust fyrir tvo landshluta, Austurland þar sem hlutdeild greinarinnar í heildaratvinnutekjum árið 2024 var 19% og Vesturland þar sem hlutdeildin var 18%. Flutningar og geymsla hefur lang hæstu hlutdeild á Suðurnesjum eða 19% og rekstur gisti- og veitingastaða hefur hæstu hlutdeild á Suðurlandi 10%. Sjávarútvegur (veiðar og vinnsla) var hlutfallslega mikilvægastur fyrir atvinnutekjur á Vestfjörðum árið 2024 þar sem hlutdeild greinarinnar var 22%, á Austurlandi var hún 18% og á Vesturlandi 12%.
Fjármagnstekjur geta verið mjög mismunandi eftir svæðum og árum því að fáir einstaklingar geta hagnast um háar upphæðir á stöku ári, svo sem vegna sölu fyrirtækja. Á höfuðborgarsvæðinu var hlutfall fjármagnstekna 12% sem var hæsta gildi allra landshluta árið 2024. Árið 2023 var hlutdeild fjármagnstekna 10% á höfuðborgarsvæðinu en hæst 15% á Suðurlandi.
Skýrsla Byggðastofnunar inniheldur eingöngu helstu niðurstöður en í mælaborði sem verður uppfært á næstu vikum er hægt að skoða tölur um stöðu og þróun tekna eftir svæðum og kyni. Þar er jafnframt hægt að skoða hlutdeild atvinnugreina í atvinnutekjum eftir svæðum.
Samkvæmt gildandi byggðaáætlun og lögum um Byggðastofnun á stofnunin að fylgjast með byggðaþróun og helstu áhrifaþáttum hennar með úrvinnslu opinberra gagna og eigin gagnasöfnun.
Fréttasafn
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

