Fara í efni  

Fréttir

Þrjú menningarverkefni tilnefnd til Eyrarrósarinnar 2011

Eyrarrósin, árleg viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður afhent á Bessastöðum 13. febrúar næstkomandi og er það í sjöunda sinn sem hún er veitt. Þrjú verkefni hafa verið tilnefnd úr hópi umsækjenda til Eyrarrósarinnar 2011: 700IS Hreindýraland á Egilsstöðum, Sumartónleikar í Skálholti og Þórbergssetur á Hala í Suðursveit.


Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands. Markmið Eyrarrósarinnar er að efla fagmennsku og færni við skipulagningu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni, skapa sóknarfæri á sviði menningar-tengdrar ferðaþjónustu og auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta.

Við athöfnina verður tilkynnt hvert framangreindra verkefna hlýtur Eyrarrósina í ár; fjárstyrk að upphæð 1,5 milljón kr, verðlaunagrip eftir Steinunni Þórarinsdóttur og flugferðir frá Flugfélagi Íslands. Aðrir tilnefndir hljóta 250 þúsund króna framlag auk flugferða. Verðlaunin veitir Dorrit Moussaieff forsetafrú, sem jafnframt er verndari Eyrarrósarinnar.

Umsögn valnefndar um tilnefnd verkefni:

Sumartónleikar í Skálholti
Sumartónleikar í Skálholti hafa í þrjátíu og fimm ár verið haldnir í nokkrar vikur á hverju sumri í Skálholtsdómkirkju í Biskupstungum. Jafnframt er þar staðið að öflugri útgáfu og rannsóknum á tónlistararfinum. Fjölbreytt efnisval og gæði Sumartónleikanna laða að stóran hóp tónlistarunnenda auk ferðamanna og annarra gesta enda orðnir fastur liður í lífi fjölda fólks. Listrænn metnaður hátíðarinnar hefur eflt nýsköpun í tónlist, stuðlað að vakningu á flutningi barokktónlistar á Íslandi og dýpkað þekkingu á íslenska söngarfinum. Sumartónleikar í Skálholti eru mikilvægur menningarviðburður sem jafnframt veitir almenningi greiðan aðgang að einum sögufrægasta stað landsins.

Þórbergssetur
Meginhlutverk Þórbergsseturs á Hala í Suðursveit er að kynna líf og verk Þórbergs Þórðarsonar rithöfundar, íslenskan bókmenntaarf og um leið sögu þjóðarinnar. Jafnframt hefur Þórbergssetur frá stofnun, árið 2006, verið öflugt í uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu í Skaftafellssýslum, varðveitt og viðhaldið staðbundinni þekkingu og þjóðlegum menningarverðmætum. Starfið í Þórbergssetri er byggt á faglegum grunni og frá upphafi hefur verið lögð rík áhersla á samstarf við mennta- og menningarstofnanir í héraði og víðar. Sérstaða Þórbergsseturs felst ekki síst í þekkingu heimamanna á náttúru og umhverfi, auk sagnahefðar sem byggir á einstakri færni og framsetningu á íslenskri tungu í verkum eins merkasta rithöfundar þjóðarinnar.

700is Hreindýraland
700IS Hreindýraland er alþjóðleg kvikmynda- og vídeólistahátíð sem haldin er á Egilsstöðum. Hátíðin var fyrst haldin árið 2006 og stendur yfir í vikutíma í mars ár hvert. Áhersla er lögð á að sýna tilraunakennda kvikmyndalist og á hátíðin í góðu samstarfi við skóla á Fljótsdalshéraði sem og innlendar og erlendar menningarstofnanir. Virk þátttaka Héraðsbúa sem og öflugt Evrópusamstarf gefur hátíðinni mikið gildi og skipuleggjendur hafa unnið frumkvöðlastarf í kynningu myndbanda- og vídeólistar. 700IS Hreindýraland er áhugaverður bræðingur listgreina sem auðgar menningar- og mannlíf á Austurlandi sem og alla ferðaþjónustu á svæðinu, með því að laða að erlenda og innlenda listamenn og gesti utan hefðbundins ferðamannatíma.

Eyrarrósina 2010 hlaut tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystra.

Aðrir Eyrarrósarhafar eru:

  • Landnámssetrið í Borgarnesi,
  • rokkhátíðin Aldrei fór ég suður,
  • Strandagaldur á Hólmavík, LungA,
  • listahátíð ungs fólks á Austurlandi
  • Þjóðlagahátíðin á Siglufirði.

Ár hvert er auglýst eftir umsóknum í fjölmiðlum og eru umsækjendur meðal annars menningarhátíðir, stofnanir, söfn auk tímabundinna verkefna. Fjögurra manna verkefnisstjórn, skipuð forstjóra og stjórnarformanni Byggðastofnunar og stjórnanda og framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík, tilnefnir og velur verðlaunahafa.

Nánari upplýsingar veita:
Steinunn Þórhallsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Listahátíðar í Reykjavík
steinunn@artfest.is s. 561-2444 og 862-3242
Guðrún Norðfjörð, framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík
gudnord@artfest.is s. 561-2444 og 866 6010

Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands.

Sjá fréttatilkynningu


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389