Fréttir
Þróunar- og rannsóknastarf mikilvægt í byggðaþróun
"Byggðastofnun, í umboði iðnaðarráðuneytisins, gegnir miklu hlutverki í þeirri viðleitni að skapa landsbyggðinni
atvinnutækifæri og umhverfi sem laða að fólk með mismunandi menntun og reynslu. Segja má að þetta hlutverk sé tvíþætt. Annars
vegar að vinna að undirbúningi, skipulagi og fjármögnun verkefna sem og veitingu lána og ábyrgða, með fjárfestingum í fyrirtækjum
og styrkjum til ýmissa verkefna, sem sagt hin almenna fjármálaumsýsla. Hins vegar er það hlutverk Byggðastofnunar, sem ekki er síður
mikilvægt, en það er að vinna að eflingu byggðar, með rannsóknum,gagnaöflun og með ráðgjöf og samstarfi af ýmsu tagi," sagði
Herdís Á. Sæmundardóttir, stjórnarformaður Byggðastofnunar í ræðu sinni á ársfundi stofnunarinnar.
Herdís lagði áherslu á mikilvægi þróunar- og rannsóknastarfsins hvað byggðaþróun varðar og sagði þann
þátt forsendu fyrir því að tækist að skapa jafnvægi í byggð landsins.
"Ég ætla aðeins að víkja að þessu síðara hlutverki stofnunarinnar, þ.e.a.s. þróunarstarfinu. Byggðastofnun gegnir lykilhlutverk
í eflingu byggðar í landinu. Í lögum um stofnunina segir m.a. eftirfarandi um hlutverk hennar: ,,Hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu
byggðar og atvinnulífs á landsbyggðinni............. Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og
rannsóknum. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra.
Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu
í byggðum landsins. Stofnunin getur einnig tekið þátt í gerð svæðisskipulags samkvæmt skipulags- og byggingarlögum."
Þetta
er stórt hlutverk. Og það er ekki síður mikilvægt en lánastarfsemin. Þær miklu samfélagsbreytingar sem ég nefndi hér í
upphafi kalla einmitt á að náið sé fylgst með þróun byggðar og atvinnulífs einstakra svæða þannig að auðveldara
sé annars vegar að leiðbeina og stýra tiltekinni þróun til betri vega og hins vegar að grípa til viðeigandi aðgerða þegar
áföll í atvinnulífi dynja yfir. Öflugt þróunar- og rannsóknastarf er forsenda þess að okkur beri gæfa til að skapa það
jafnvægi byggðar í landinu að fólk og fyrirtæki geti lifað og þroskast við heilbrigð skilyrði.
Lesa erindi Herdísar Á. Sæmundardóttur, stjórnarformanns
Fréttasafn
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember