Fréttir
Til hvers eru sveitarfélög? Þjónusta og samstarf sveitarfélaga og svæðisbundið hlutverk þeirra
Bjarni Þóroddsson lauk nú í júní meistaranámi í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Lokaverkefni hans „Til hvers eru sveitarfélög? Þjónusta og samstarf sveitarfélaga og svæðisbundið hlutverk þeirra“ var eitt af fjórum verkefnum meistaranema sem fékk styrkveitingu árið 2023.
Í verkefninu er fjallað um hlutverk íslenskra sveitarfélaga, einkum hvort þau gegni ólíkum svæðisbundnum hlutverkum þrátt fyrir sama lagalega hlutverk gagnvart íbúum sínum. Sérstök áhersla er lögð á þjónustu sveitarfélaga, samstarf þeirra og þjónustusókn íbúa og hvort þessi atriði sýni að ákveðin sveitarfélög eða byggðakjarnar virki sem þjónustumiðstöðvar fyrir stærra svæði. Rannsóknarspurningin snýst um hvort breytileiki í þjónustu, samstarfi og þjónustusókn gefi til kynna mismunandi svæðisbundin hlutverk sveitarfélaga.
Rannsóknin byggir á þrenns konar gögnum. Ársreikningar sveitarfélaga fyrir árið 2023 eru einkum notaðir til að skoða útgjöld eftir málaflokkum. Í öðru lagi er notuð samantekt um samstarf sveitarfélaga, byggð á gögnum fyrir innviðaráðuneytið, upplýsingum af vefsíðum sveitarfélaga og yfirferð sveitarfélaganna sjálfra. Í þriðja lagi er unnið úr gögnum þjónustukannana Byggðastofnunar frá árunum 2016-2018 um hvert íbúar sækja mismunandi þjónustu.
Rannsóknin er megindleg og skiptist í þrjá meginhluta. Fyrst eru fjármál sveitarfélaga greind með samanburði á kostnaði á íbúa og hlutfalli útgjalda eftir málaflokkum, meðal annars með sérstakri skoðun á landshlutakjörnum. Þá er samstarf sveitarfélaga kortlagt eftir málaflokkum og greint með hliðsjón af samstarfi. Loks er þjónustusókn íbúa greind til að kanna hvort íbúar sæki þjónustu innan eigin sveitarfélags, innan landshluta eða til tiltekinna kjarna. Greiningin er sett í samhengi við svæðisskiptingu landshlutasamtaka og landshlutakjarna.
Greint er frá því að niðurstöður bendi til þess að íslensk sveitarfélög sinni ekki einsleitu hlutverki, þótt þau starfi innan sama lagaramma. Sérstaklega virðast sveitarfélög sem innihalda stærri byggðakjarna gegna víðara svæðisbundnu hlutverki en önnur sveitarfélög á sama svæði. Þetta birtist skýrast í þjónustusókn íbúa og samstarfi sveitarfélaga en einnig að einhverju leyti í útgjaldamynstri. Íbúar sækja tiltekna þjónustu fremur til ákveðinna kjarna, sum sveitarfélög taka oftar leiðandi hlutverk í samstarfi og fjármálagreiningin bendir til þess að ákveðin sveitarfélög beri meiri kostnað eða sinni sérhæfðari verkefnum. Rannsóknin sýnir einnig að formleg landshlutaskipting fer ekki alltaf saman við raunveruleg þjónustu- og áhrifasvæði.
Í verkefninu er sýnt fram á að mögulegt er að greina á milli almenns lögbundins hlutverks sveitarfélaga gagnvart eigin íbúum og svæðisbundins hlutverks þeirra innan stærra þjónustu-, samstarfs- og byggðaþróunarsamhengis. Í lokaorðum bendir höfundr á að slík nálgun geti nýst við áframhaldandi stefnumótun um sveitarfélög, landshluta og hlutverk stærri byggðakjarna.
Sjá meistararitgerð:
Til hvers eru sveitarfélög? Þjónusta og samstarf sveitarfélaga og svæðisbundið hlutverk þeirra
Byggðastofnun hefur frá árinu 2015 veitt styrki til meistaranema sem vinna að lokaverkefnum á sviði byggðaþróunar og hefur það verið kostur ef verkefnið hefur skírskotun í byggðaáætlun.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

