Fréttir
Ungmennakall Norðurslóðaáætlunarinnar (NPA) er opið
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í ungmennakall Norðurslóðaáætlunarinnar og er umsóknarfrestur til 2. október nk.
Ungmennakallið er einfaldara en hefðbundin köll og, eins og nafnið bendir til, sérstaklega miðað að því að vinna með áskoranir og tækifæri ungs fólks á norðurslóðum.
Hverjir geta sótt um?
Verkefnin eiga að leiða saman samtök frá mismunandi svæðum til að miðla hugmyndum, þekkingu og góðum starfsvenjum. Þótt áhersla sé lögð á ungt fólk í auglýsingunni þurfa samtök ekki að vera æskulýðssamtök til að sækja um. Það sem skiptir máli er að þau vinni með eða fyrir ungt fólk.
Til að tryggja að verkefni séu leidd af ungu fólki verður að minnsta kosti eitt æskulýðsfélag að vera með í hverju verkefni, annaðhvort sem fullgildur samstarfsaðili eða tengdur samstarfsaðili. Þátttakendur geta verið bæði fyrir opinberir og einkaaðilar.
Hvað gerir ungmennakallið frábrugðið?
Ungmennakallið er hannað til að vera sveigjanlegt og aðgengilegt.
Umsækjendur geta valið verkefnislengd upp á 6, 12 eða 18 mánuði eftir umfangi. Hverri verkefnislengd fylgir ákveðinn hámarksfjárhagsrammi, 6 mán. = 50.000 evrur, 12 mán. =100.000 evrur og 18 mán. = 200.000 evrur. Styrkhlutfallið er 65% þannig að verkefnisaðilar þurfa sjálfir að fjármagna 35% af framangreindum upphæðum. Þetta gerir samtökum með mismunandi reynslu kleift að taka þátt, allt frá þeim sem sækja um í fyrsta sinn til reyndari verkefnisaðila.
Hvað gerist næst?
Þann 15. júní mun NPA skrifstofan halda vefnámskeið um skipulagningu verkefna og gerð fjárhagsáætlunar. Taktu þátt með því að skrá þig hér.
Í sumar eru umsækjendur hvattir til að ræða verkefnishugmyndir sínar við starfsmenn skrifstofu áætlunarinnar eða landstengilið áætlunarinnar, Reinhard Reynisson á netfanginu reinhard@byggdastofnun.is.
Eftir að fresturinn rennur út fara umsóknir í gegnum nokkur matsstig. Búist er við endanlegum ákvörðunum um fjármögnun í desember 2026 og áætlað er að samþykkt verkefni hefjist í febrúar eða mars 2027.
Frekari upplýsingar um skilmála ungmennakallsins er að finna á heimasíðu Norðurslóðaáætlunarinnar og eru áhugasamir hvattir til að kynna sér efnið þar.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015

- 2014

- 2013

- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008

- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember