Fara í efni  

Fréttir

Vaxtarými fyrir norðlenska sprota

Nýsköpunarhreyfingin Norðanátt býður upp á öflugt Vaxtarrými í annað sinn í haust.

Vaxtarrými er átta vikna viðskiptahraðall beint að sjálfbærni, með áherslu á mat, vatn og orku þar sem þátttakendur fá tækifæri til að efla sig og sín fyrirtæki og vaxa með vindinn í bakinu. Norðanátt fékk fyrr í sumar styrk frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu til að endurtaka hringrás nýsköpunar á Norðurlandi en hún samanstendur af viðburðum sem styðja við frumkvöðla með hugmyndir á ólíkum stigum. 

Í vor var haldin nýsköpunarkeppnin Norðansprotinn en hún markaði upphaf hringrásarinnar. Viðskiptahraðallinn Vaxtarrými tekur svo við í haust og í lok mars á næsta ári fer fram fjárfestahátíð á Siglufirði.

Fjárfestahátíð Norðanáttar var haldin í fyrsta sinn sl. vor og hún vakti mikla athygli, en þetta var fyrsta hátíð sinnar tegundar hér norðan heiða. Á næsta ári mun Norðanátt einnig bjóða erlenda fjárfesta velkomna en völdum sprota- og vaxtarfyrirtækjum verður boðið að taka þátt í þjálfunarbúðum fyrir hátíðina og því einstaka tækifæri að kynna sín fyrirtæki og verkefni fyrir íslenskum og erlendum fjárfestum. 

Norðanátt hefur sömuleiðis hafið samstarf við háskólana á svæðinu, Háskólann á Akureyri og Háskólann á Hólum með það fyrir augum að efla nýsköpun og frumkvöðlastarf nemenda. 

 Kynningarfundur Vaxtarrýmis fer fram 13. september í gegnum netið en umsóknarfrestur er til og með 19. september. Vaxtarrými er byggt upp að fyrirmynd viðskiptahraðla og er sérhannað með þarfir teymanna sem taka þátt í huga og hafa þau þannig áhrif á þá fræðslu sem stendur þeim til boða. Sex til átta teymi verða valin til þátttöku.

Teymin hitta reynslumikla leiðbeinendur, frumkvöðla, fjárfesta og stjórnendur fyrirtækja á Norðurlandi og víðar á ráðgjafafundum, sitja vinnustofur og fræðslufundi og mynda sterkt tengslanet sín á milli. Átta teymi tóku þátt í Vaxtarrými 2021 og stendur þeim til boða að taka þátt sem svokallaðir Alumni frumkvöðlar og sitja fræðslufundi og leiðbeina árganginum í ár. Þannig má skapa virkt frumkvöðlasamfélag með jafningjaráðgjöf á Norðurlandi. 

Vaxtarrými hefst 3. október og lýkur 24. nóvember og fer fram að mestu leyti á netinu. Teymin hittast fjórum sinnum meðan á verkefninu stendur á vinnustofum á völdum stöðum á Norðurlandi. Lokaviðburður Vaxtarrýmis fer fram 24. nóvember með fjárfestakynningum teymanna sem taka þátt. Leitast er eftir þátttakendum, þ.e. frumkvöðlum, nýjum fyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum innan rótgróinna fyrirtækja á Norðurlandi sem eru komin af hugmyndastigi og vilja nýta Vaxtarrými Norðanáttarinnar til að vaxa. 

Sótt er um á vefsíðu Norðanáttar - www.nordanatt.is.
Smellið
hér til að opna umsóknarformið. 

 

Umsóknarfrestur er til og með 19. september. 

 

Um Norðanátt - Samstarfsverkefnið Norðanátt er hreyfiafl sem miðar að því að skapa kraftmikið umhverfi á Norðurlandi fyrir frumkvöðla og fyrirtæki. Að verkefninu Norðanátt koma Eimur, SSNV, SSNE, RATA og Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið auk samstarfsaðila. Hópurinn vinnur í anda nýrrar klasastefnu, þvert á stofnanir samfélagsins og hraðar framþróun og nýsköpun. 

 


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389