Fara í efni  

Fréttir

Verkefnastyrkir NORA - haustúthlutun

NORA auglýsir eftir umsóknum um styrki til samstarfsverkefna á milli Íslands og hinna NORA-landanna, þ.e. Grænlands, Færeyja og Noregs. Umsóknarfrestur er 5. október nk.

NORA auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki til samstarfsverkefna á milli Íslands og hinna NORA-landanna, þ.e. Grænlands, Færeyja og Noregs.

Sækja má um styrki til verkefna sem falla undir eftirtalin meginsvið NORA:

Auðlindir sjávar

Verkefni sem stuðla á sjálfbæran hátt að nýtingu auðlinda sjávar, eldi sjávardýra og sjávarvöruframleiðslu til manneldis og tengdra greina.

Ferðamál

Verkefni sem stuðla að sjálfbærri þróun náttúru- og menningartengdrar ferðaþjónustu í löndunum.

Upplýsingatækni

Verkefni sem stuðla að hagnýtingu upplýsingatækni á svæðinu.

Annað svæðasamstarf, samgöngur og sjálfbærni

Verkefni sem efla fámenn byggðarlög í löndunum, samgöngur og sjálfbæra þróun.

Styrkir NORA eru helst veittir fyrirtækjum, einum sér eða í samstarfi við rannsóknar- og þróunarstofnanir og eru veittir  til að koma á tengslanetum, til rannsóknatengdra forverkefna og aðalverkefna t.d. innan Norðurslóðaáætlunar ESB (NPP). Frá árinu 2007 styrkir NPP verkefni á sviði nýsköpunar og samkeppni, ásamt sjálfbærni náttúru- og samfélagsauðlinda. Umsóknir sem fela í sér samstarf við fyrirtæki og stofnanir í norðanverðu Skotlandi og á austurströnd Kanada eru eftirsóknarverðar.

Styrki er lengst unnt að veita til 3ja ára og aðeins sem hluti af heildarfjármögnun verkefnis (hámark 50%), gegn mótframlagi viðkomandi aðila. Umsóknir skula fela í sér samstarf á milli a.m.k. tveggja NORA-landa.

Umsóknareyðublaðið má finna á heimasíðu NORA, http://www.nora.fo/ og útfyllist á dönsku, norsku eða sænsku og skilist í tölvutæku formi til:

NORA, NORDISK ATLANTSAMARBEJDE

Bryggjubakki 12 • Box 259 • FO-110  Tórshavn • Sími: +298 353110 • Fax: +298 353101 • nora@nora.fo

Umsóknir skulu berast NORA í síðasta lagi 5. október 2007.

Frekari upplýsingar veitir Sigríður K. Þorgrímsdóttir, Byggðastofnun, Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki, sími 455 5400,  netfang sigga@byggdastofnun.is 

Jafnframt er að finna upplýsingar hér á heimasíðunni undir merki NORA eða undir "Erlent samstarf"


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389