Fréttir
Verkefnisstjórar í Brothættum byggðum komu saman á Króknum
Þrír nýir verkefnisstjórar í Brothættum byggðum komu á námskeið í Byggðastofnun í vikunni þar sem farið var yfir framkvæmd og verklag í byggðaþróunarverkefninu. Öll starfa þau hjá Vestfjarðastofu og sinna hvert sínu þátttökubyggðarlaginu þ.e. Tálknafirði, Kaldrananeshreppi og Reykhólahreppi. Fleiri verkefnisstjórar bættust svo í hópinn og haldinn var vinnufundur þar sem tækifæri gafst m.a. til þess að deila reynslu og læra hvert af öðru.
Mikilvægi íbúasamráðs
Sigurborg Kr. Hannesdóttir hjá Ildi leiddi hópinn í samtal um íbúasamráð en sá þáttur er einn mikilvægasti hlekkurinn í verkefninu. Sigurborg hefur mikla reynslu á þessu sviði og hefur frá upphafi stýrt íbúaþingum í Brothættum byggðum, auk þess sem verkefnisstjórahópurinn hefur notið leiðsagnar hennar á námskeiðum. Verkefni Brothættra byggða byggja fyrst og fremst á frumkvæði íbúa. Verkefnisstjóri hvers þátttökubyggðarlags gegnir lykilhlutverki í að halda utan um alla þræði í verkefninu, veita ráðgjöf og tengja hagaðila saman.
Fróðleikur og fræðsla
Guðbjörg Óskarsdóttir, sérfræðingur á fyrirtækjasviði, kynnti starfsemi fyrirtækjasviðs og fjölbreytta lánamöguleika sem íbúar utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um hjá stofnuninni. Sigríður Elín Þórðardóttir, forstöðumaður þróunarsviðs, sagði frá hlutverki Byggðastofnunar og kynnti fjölbreytta starfsemi stofnunarinnar. Verkefnisstjórarnir undirbjuggu erindi frá hverju byggðarlagi um framvindu verkefna, deildu reynslu og ígrunduðu ýmis málefni sem tengjast eflingu samfélaga í víðum skilningi.
Starfsfólk Byggðastofnunar þakkar verkefnisstjórum Brothættra byggða fyrir þeirra mikilvæga framlag til eflingar byggðar og búsetu í öllum þátttökubyggðarlögunum og fyrir fróðlega og gagnlega samveru.
Hér fyrir neðan má sjá myndir sem teknir voru af þessu tilefni.

Kynning á lánamöguleikum fyrirtækjasviðs.

Valborg Ösp verkefnisstjóri í Sterkum Stöðvarfirði segir frá viðburði á Stöðvarfirði.

Sigurborg Kr. Hannesdóttir leiðir vinnustofu um íbúasamráð.

Verkefnisstjórar ásamt starfsfólki á þróunarsviði Byggðastofnunar.
Verkefnið er ein af aðgerðum Byggðaáætlunar, C.2, og markmið þess er að spornað verði við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarlögum. Verkefnið byggir á samstarfi Byggðastofnunar, viðkomandi sveitarfélags, landshlutasamtaka og síðast en ekki síst íbúa hvers þátttökubyggðarlags. Því er einkum ætlað að styðja við frumkvæði og þátttöku íbúa til hagsbóta fyrir samfélagið í víðum skilningi.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

