Fréttir
Verkefnisstjórn hefur störf í verkefni Brothættra byggða á Tálknafirði
Nýr verkefnisstjóri, Bergdís Þrastardóttir, hóf störf hjá Vestfjarðastofu í byrjun ágúst. Bergdís mun leiða byggðaþróunarverkefnið Brothættar byggðir á Tálknafirði en samningar um verkefnið voru undirritaðir á milli Byggðastofnunar, Vesturbyggðar og Vestfjarðastofu fyrr á árinu. Búið er að skipa verkefnisstjórn í verkefninu og var fyrsti fundur verkefnisstjórnar jafnframt haldinn í gær í fjarfundi. Í verkefnisstjórn er samankomin mikil reynsla af samfélagsverkefnum og góð tenging við samfélagið í Vesturbyggð og á Tálknafirði.
Fyrstu skrefin
Fyrstu verkefni nýs verkefnisstjóra og verkefnisstjórnar verður undirbúningur íbúaþings sem vonir standa til að hægt verði að halda snemma hausts.
Starfsfólk Byggðastofnunar óskar nýjum verkefnisstjóra og verkefnisstjórn velfarnaðar í störfum sínum og hlakkar til komandi samstarfs. Það eru sannarlega spennandi tímar framundan á Tálknafirði og þess er vænst að verkefnið Brothættar byggðir muni leggja lóð á vogarskálar í að efla byggð, atvinnulíf og búsetugæði á Tálknafirði á næstu árum, en gert er ráð fyrir að verkefnið standi yfir til loka maí 2031, hvað aðkomu Byggðastofnunar varðar.
Fylgist með framvindunni
Vakin er athygli á því að hægt verður að fylgjast með framgangi mála í verkefninu á fésbókarsíðu verkefnisins, sem senn mun líta dagsins ljós. Einnig má nálgast upplýsingar um byggðaþróunarverkefnið Brothættar byggðir á heimasíðu Byggðastofnunar hér.
Hægt er að hafa samband við verkefnisstjóra, Bryndísi Þrastardóttur, á netfangið bergdis@vestfirdir.is
Verkefnisstjórn Brothættra byggða á Tálknafirði skipa:
- Bergdís Þrastardóttir, verkefnisstjóri
- Nancy Rut Helgadóttir, fulltrúi íbúa
- Gunnlaugur Björn Jónsson, fulltrúi íbúa
- Jenný Lára Magnadóttir, fulltrúi sveitarfélags
- Aðalsteinn Óskarsson, fulltrúi Vestfjarðastofu
- Auk tveggja fulltrúa frá Byggðastofnun

Frá fyrsta fundi verkefnisstjórnar 13. ágúst 2026.
Verkefnið er ein af aðgerðum Byggðaáætlunar, C.2, og markmið þess er að spornað verði við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarlögum. Verkefnið byggir á samstarfi Byggðastofnunar, viðkomandi sveitarfélags, landshlutasamtaka og síðast en ekki síst íbúa hvers þátttökubyggðarlags. Því er einkum ætlað að styðja við frumkvæði og þátttöku íbúa til hagsbóta fyrir samfélagið í víðum skilningi.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015

- 2014

- 2013

- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008

- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember