Fara í efni  

Fréttir

Verkefnisstjórn hefur störf í verkefni Brothættra byggða í Kaldrananeshreppi

Drangsnes

Nýr verkefnisstjóri, Valgeir Jens Guðmundsson, hóf störf hjá Vestfjarðastofu í gær. Valgeir mun leiða byggðaþróunarverkefnið Brothættar byggðir í Kaldrananeshreppi en samningar um verkefnið voru undirritaðir á milli Byggðastofnunar, Kaldrananeshrepps og Vestfjarðastofu fyrr á árinu. Búið er að skipa verkefnisstjórn í verkefninu og var fyrsti fundur verkefnisstjórnar jafnframt haldinn í gær í fjarfundi.

Fyrstu skrefin

Fyrstu verkefni nýs verkefnisstjóra og verkefnisstjórnar verður undirbúningur íbúaþings sem vonir standa til að hægt verði að halda á haustmánuðum.

Starfsfólk Byggðastofnunar óskar nýjum verkefnisstjóra og verkefnisstjórn velfarnaðar í störfum sínum og hlakkar til komandi samstarfs. Það eru sannarlega spennandi tímar framundan í Kaldrananeshreppi og þess er vænst að verkefnið Brothættar byggðir muni leggja lóð á vogarskálar í að efla byggð, atvinnulíf og búsetugæði í Kaldrananeshreppi á næstu árum, en gert er ráð fyrir að verkefnið standi yfir til loka árs 2030.

Fylgist með framvindunni

Vakin er athygli á því að hægt verður að fylgjast með framgangi mála í verkefninu á fésbókarsíðu verkefnisins, sjá hér. Einnig má skoða upplýsingarefni um byggðaþróunarverkefnið Brothættar byggðir á heimasíðu Byggðastofnunar hér.

Hægt er að hafa samband við verkefnisstjóra, Valgeir Jens Guðmundsson, á netfangið valgeir@vestfirdir.is

Verkefnisstjórn Brothættra byggða í Kaldrananeshreppi skipa:

Anna Björg Þórarinsdóttir, fulltrúi íbúa

Helga Harðardóttir, fulltrúi Byggðastofnunar og formaður stjórnar

Hildur Aradóttir, fulltrúi Kaldrananeshrepps

Kristján Þ. Halldórsson, fulltrúi Byggðastofnunar

Mikael Rafn Steingrímsson, fulltrúi íbúa

Skúli Gautason, fulltrúi Vestfjarðastofu

Valgeir Jens Guðmundsson, verkefnisstjóri

Til baka

Fréttasafn

2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389