Fara í efni  

Fréttir

Verulegur hallarekstur á síðasta ári

Í ræðu Aðalsteins Þorsteinssonar, forstjóra Byggðastofnunar, á ársfundi stofnunarinnar á Höfn í Hornafirði kom fram að á liðnu ári var verulegur halli á stofnuninni, eða sem nam 408 milljónum króna.

Fram kemur í ársskýrslu stofnunarinnar, sem lögð var fram á fundinum, að vaxtatekur námu röskum milljarði króna á síðasta ári og lækkuðu um nærfellt hálfan milljarð króna milli ára. Sömuleiðis lækkuðu vaxtagjöld um svipaða upphæð milli ára. Framlög í afskriftasjóð útlána og niðurfærsla á hlutafjáreign nam hins vegar á síðasta ári röskum 700 milljónum króna.

Niðurstaða efnahagsreiknings 2002 var 13.172 m.kr. og hafði  hækkað úr 13.072 m.kr. árið 2001 en eigið fé lækkaði úr 2.172 m.kr. í árslok 2001 í 1.692 m. kr.  í árslok 2002. Heildarútlán Byggðastofnunar á árinu 2002 námu 2,1 milljörðum og í árslok voru útistandandi lán um 11,3 milljarðar króna.

Fram kom í máli Aðalsteins kom fram að mikil eftirspurn er eftir lánsfjármagni hjá stofnuninni og stefnir í að útlán verði í ár um 2,8 milljarðar króna.

Liðið ár var hið fyrsta sem öll starfsemi er á einum stað og undir sama þaki en umbreyting á stofnuninni hefur sett mark sitt á starfsemina á undanförnum árum. Aðalsteinn ræddi um helstu verkefni stofnunarinnar um þessar mundir og ber þar hæst átak til atvinnusköpunar á landsbyggðinni og framkvæmd byggðaáætlunar. Af öðrum verkefnum má nefna innlend og erlend samstarfsverkefni á sviði byggða- og atvinnumála, samstarf við atvinnuþróunarfélög, uppbyggingu menntunar og fjarkennslu á landsbyggðinni, úthlutun byggðakvóta, jafnréttismál og fleira.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389