Fara í efni  

Fréttir

Vinnusóknarsvæði þéttbýlisstaða 2011

Svæði daglegrar vinnusóknar eru mikilvæg svæði fyrir byggðaþróun. Innan þeirra sækir fólk daglega milli heimilis og vinnustaðar þannig að þau geta verið eðlilegri viðmiðunarsvæði en sveitarfélög eða landshlutar. Á vinnusóknarsvæði sjávarþorps getur aflabrestur verið stóráfall en störfin þar verið svo lítill hluti af störfum í landshluta að á þeim grunni mælist breytingin lítil.

Torsótt var og er enn að tengja saman rafrænar upplýsingar um staðsetningu heimilis og vinnustaðar heimilisfólks og til þess að fá þessum vinnusóknarsvæðum lýst fékk Byggðastofnun síðla árs 2008 atvinnuþróunarfélögin átta til liðs við að greina vinnusóknarsvæði þéttbýlisstaða. Mótað var einfalt verklag við greininguna og byggt á staðarþekkingu og upplýsingaöflun starfsmanna atvinnuþróunarfélaganna og vinnusóknarsvæði þéttbýlisstaðanna sýnd á yfirlitskorti sem hefur verið til endurskoðunar á haustdögum 2011 í kjölfar breytinga á samgöngukerfinu síðustu misserin. Uppfært kort sem sýnir svæði daglegrar vinnusóknar 2011 sýnir nokkrar breytingar frá 2008, vinnusóknarsvæði Siglufjarðar nær nú inn til Ólafsfjarðar og skarast þar við vinnusóknarsvæði þéttbýlisstaðanna við Eyjafjörð, vinnusóknarsvæði Reyðarfjarðar nær nú til Seyðisfjarðar og dagleg vinnusókn er milli Reykhóla og Hólmavíkur og af svæði Reykhóla til Búðardals.

Nánar má sjá kort af vinnusóknarsvæðunum 2011 hér, lýsingu á þeim hér og kort af vinnusóknarsvæðunum frá 2008 hér.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389