Fara í efni  

Fréttir

Vinnustofa atvinnuráðgjafa og fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar

Byggðastofnun verður með vinnustofu fyrir atvinnuráðgjafa landshlutasamtakanna í landsbyggðunum þessa viku í höfuðstöðvum sínum á Sauðárkróki. Markmiðið er að efla tengsl á milli atvinnuráðgjafa og lánasérfræðinga stofnunarinnar og stuðla þannig að betri þjónustu um land allt. 

Landshlutasamtökin sinna mikilvægu hlutverki atvinnuráðgjafar í landsbyggðunum en Byggðastofnun ráðstafar fjármagni af fjárlagaliðnum ,,Atvinnuráðgjöf á landsbyggðinni” til þeirra. Núverandi samningur um atvinnuráðgjöf gildir frá árinu 2023-2027. Markmið samningsins er m.a. að efla og styðja atvinnulíf og nýsköpun í byggðum landsins með árangursríkri og skilvirkri atvinnuráðgjöf og stuðningi á grunni svæðisbundinna styrkleika. 

Á vinnustofunni verður samstarfið rýnt, farið vel yfir fjármögnunarstarfsemi Byggðastofnunar, atvinnuráðgjafar landshlutasamtakanna sjö veita innsýn í sína vinnu, Ráðgjafamiðstöð landsbúnaðarins kynnir sína ráðgjöf auk þess sem viðskiptavinir segja frá sinni reynslu.

Í lögum um Byggðastofnun er kveðið á um að stofnunin skipuleggi og vinni að ráðgjöf við atvinnuvegi í landsbyggðunum í samstarfi við landshlutasamtökin, sveitarfélög og aðra. Stofnunin skal gera samninga við atvinnuþróunarfélög, stofnanir, sveitarfélög, sjálfstætt starfandi ráðgjafa eða aðra, um að annast atvinnuráðgjöf á tilteknu sviði, atvinnugrein eða landsvæði. Í því skyni hefur Byggðastofnun gert samninga við öll sjö landshlutasamtökin í landsbyggðunum;  Austurbrú, Heklan (SSS), SASS, SSNE, SSNV, SSV og  Vestfjarðastofa.

Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011

2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008

2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389