Fara í efni  

Fréttir

Aflamark Byggðastofnunar - boð um samstarf

Með breytingu á lögum nr. 116/2006 þann 25. júní 2013 samþykkti Alþingi að Byggðastofnun skuli hafa til ráðstöfunar aflaheimildir til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að auka aflaheimildir Byggðastofnunar um 1100 þorskígildistonn og tekur breytingin gildi á næsta fiskveiðiári (2014/2015). Byggðastofnun hefur mótað eftirfarandi viðmið um úthlutun veiðiheimilda samkvæmt þessari heimild.

 Meginmarkmið verkefnisins er að auka byggðafestu í þeim sjávarbyggðum sem:

  • standa frammi fyrir alvarlegum og bráðum vanda vegna skorts á aflaheimildum eða óstöðugleika í sjávarútvegi,
  • eru háðastar sjávarútvegi og eiga minnsta möguleika á annarri atvinnuuppbyggingu,
  • eru fámennar, fjarri stærri byggðakjörnum og utan fjölbreyttra vinnusóknarsvæða.

 Í því skyni er stefnt að uppbyggingu í sjávarútvegi sem:

  • skapar eða viðheldur sem flestum heilsársstörfum fyrir bæði konur og karla við veiðar, vinnslu og afleidda starfsemi í viðkomandi sjávarbyggðum,
  • stuðlar að sem öflugastri starfsemi í sjávarútvegi til lengri tíma og dregur sem mest úr óvissu um framtíð sjávarbyggðanna.

 Stjórn Byggðastofnunar hefur á grundvelli greiningar á stöðu einstakra byggðarlaga ákveðið að auglýsa eftir samstarfsaðilum um nýtingu viðbótaraflaheimilda til að stuðla að meginmarkmiðum verkefnisins í eftirtöldum sjávarbyggðum sem falla að ofangreindum viðmiðum;

  • Breiðdalsvík í Breiðdalshreppi                allt að 150 þorskígildistonnum
  • Djúpivogur í Djúpavogshreppi                 allt að 400 þorskígildistonnum
  • Hrísey í Akureyrarbæ                                  allt að 150 þorskígildistonnum
  • Þingeyri í Ísafjarðarbæ                                allt að 400 þorskígildistonnum

 Endanlegt val á samstarfsaðilum mun byggja á eftirfarandi þáttum:

  • trúverðugum áformum um útgerð, vinnslu sjávarafurða eða aðra starfsemi.
  • fjölda heilsársstarfa fyrir karla og konur.
  • sem bestri nýtingu þeirra veiðiheimilda sem fyrir eru í byggðarlaginu.
  • öflugri starfsemi til lengra tíma sem dregur sem mest úr óvissu um framtíðina.
  • jákvæðum áhrifum á önnur fyrirtæki og samfélagið.
  • traustri rekstrarsögu forsvarsmanna umsækjanda.

 Umsóknum sem ekki falla að markmiðum verkefnisins verður hafnað.

 Umsóknareyðublað, ásamt nánari upplýsingum er að finna á vef Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is. Umsóknir skal senda til Byggðastofnunar, á netfangið postur@byggdastofnun.is fyrir kl. 12:00 miðvikudaginn 11. júní næst komandi. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Árnason starfsmaður þróunarsviðs.


Til baka

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389