Fara í efni  

Fréttir

Aflamark Byggðastofnunar - boð um samstarf í Grímsey

Á grundvelli bráðabirgðaákvæðis XIII í lögum nr.116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og reglugerðar nr.1064/2015, auglýsir Byggðastofnun eftir samstarfsaðilum um nýtingu viðbótaraflaheimilda í Grímsey í Akureyrarkaupstað allt að 400 þorskígildistonnum á fiskveiðiárunum 2015/2016, 2016/2017 og 2018/2019.

 Meginmarkmið verkefnisins er að auka byggðafestu í þeim sjávarbyggðum sem:

  • standa frammi fyrir alvarlegum og bráðum vanda vegna skorts á aflaheimildum eða óstöðugleika í sjávarútvegi,
  • eru háðastar sjávarútvegi og eiga minnsta möguleika á annarri atvinnuuppbyggingu,
  • eru fámennar, fjarri stærri byggðakjörnum og utan fjölbreyttra vinnusóknarsvæða.

   Í því skyni er stefnt að uppbyggingu í sjávarútvegi sem:

  • skapar eða viðheldur sem flestum heilsársstörfum fyrir bæði konur og karla við veiðar, vinnslu og afleidda starfsemi í viðkomandi sjávarbyggðum,
  • stuðlar að sem öflugastri starfsemi í sjávarútvegi til lengri tíma

  Endanlegt val á samstarfsaðilum mun byggja á eftirfarandi þáttum:

  • trúverðugum rekstraráformum
  • fjölda heilsársstarfa fyrir karla og konur.
  • sem bestri nýtingu þeirra veiðiheimilda sem fyrir eru í byggðarlaginu.
  • öflugri starfsemi til lengra tíma sem dregur sem mest úr óvissu um framtíðina.
  • jákvæðum áhrifum á önnur fyrirtæki og samfélagið.
  • traustri rekstrarsögu forsvarsmanna umsækjanda.

 Gert er ráð fyrir að gerður verði samningur vegna fiskveiðiáranna 2015/2016, 2016/2017 og 2017/2018.

 Umsóknum sem ekki falla að markmiðum verkefnisins verður hafnað.

 Umsóknareyðublað, ásamt nánari upplýsingum er að finna á vef Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is. Umsóknir skal senda til Byggðastofnunar, á netfangið postur@byggdastofnun.is fyrir kl. 22:00 sunnudaginn 13. desember n.k. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Árnason sérfræðingur á þróunarsviði.


Til baka

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Ártorg 1  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-16:00  | kt. 450679-0389