Fara í efni  

Fréttir

Byggðastofnun 25 ára

Í dag eru þau tímamót að 25 ár eru liðin frá fyrsta starfsdegi Byggðastofnunar.  1. október 1985 tók stofnunin til starfa og tók hún þá við öllum eignum og skuldbindingum Byggðasjóðs jafnframt sem felld voru úr gildi kaflar úr lögum um Framkvæmdastofnun ríkisins og tók Byggðastofnun yfir verkefni hennar á sviði byggðamála.
Lesa meira

Staða byggðarlaga sem búa við langvarandi fólksfækkun

Ákveðið hefur verið að uppfæra skýrslu Byggðastofnunar, Byggðarlög með viðvarandi fólksfækkun, frá árinu 2008. Áfram verða til skoðunar búsetuþættir eins og atvinnulíf, umhverfi, samgöngur, þjónusta, menning, menntun og velferðarmál út frá styrkleikum, veikleikum og tækifærum í hverju samfélagi fyrir sig. Það verður annars vegar gert með því að vinna tölfræðilegar upplýsingar, en einnig með því að heimsækja viðkomandi sveitarfélög.
Lesa meira

Um ESPON- verkefni um fjölbreytileika svæða (Territorial Diversity)

Áhersla ESB á svæði eða byggðir til þess að ná markmiðum um efnahagsþróun og samkennd hefur vaxið. Í endurskoðuðum stofnsáttmála Evrópu frá 2007 sem tók gildi 2009 (The Treaty on European Union) er mikil áhersla lögð á samstöðu eða samkennd innan svæða (Territorial Cohesion) til þess að ná markmiðinu um félagslega samkennd (Social Cohesion) og á mismun svæða eða sérstöðu, fjallendi, eyjar og strjálbýli. Þessi einkennissvæði eru nefnd sérstaklega í 174. grein sáttmálans.
Lesa meira

Næsti umsóknarfrestur NORA

Næsti umsóknarfrestur um samstarfsstyrki NORA er 4. október nk.   Nú er opið fyrir umsóknir í öllum fjórum málaflokkunum: auðlindir hafsins, ferðaþjónusta, upplýsingatækni og samgöngur og flutningar. Önnur verkefni í nýsköpun og svæðasamstarfi og eru til þess að auka samvinnu á starfssvæði NORA koma einnig til greina.
Lesa meira

ESPON auglýsir verkefnastyrki

ESPON auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki og verkefnatillögum fyrir tvö rannsóknasvið:
Lesa meira

Árshlutareikningur Byggðastofnunar janúar – júní 2010

Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar til júní 2010, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 30. ágúst 2010. Tap tímabilsins nam 992 mkr. Samkvæmt árshlutareikningnum er eigið fé stofnunarinnar 1.138 mkr.
Lesa meira

Áfangaskýrsla um þekkingarsetur á Íslandi

Starfshópur mennta- og menningarmálaráðherra um þekkingarsetur á Íslandi hefur skilað áfangaskýrslu. Skýrslan tekur til 189 setra um land allt og sýnir að þekkingarstarfsemi á landsbyggðinni er margbrotin og einkennist af smáum en fjölbreyttum einingum.
Lesa meira

NORA styrkir til samstarfsverkefna

Á ársfundi sínum í byrjun júní samþykkti NORA að styrkja 13 samstarfsverkefni NORA-landanna. Þar af taka Íslendingar þátt í  10 verkefnum.
Lesa meira

Mat á framkvæmd vaxtarsamninga

Í upphafi þessa árs undirritaði iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, fimm nýja vaxtarsamninga. Fjórir þeirra koma í stað eldri samninga en einn er nýr. Þeir sem koma í stað eldri samninga eru; Vaxtarsamningur Vesturlands, Vaxtarsamningur Vestfjarða, Vaxtarsamningur Austurlands og Vaxtarsamningur Suðurlands. Nýi samningurinn er Vaxtarsamningur Suðurnesja. Samningarnir gilda frá undirritun til ársloka 2013.
Lesa meira

Ársfundur Byggðastofnunar

Ársfundur Byggðastofnunar var haldinn í Miðgarði í Skagafirði 11. júní sl.  Á fundinum hélt Katrín Júlíusdóttir ávarp auk Önnu Kristínar Gunnarsdóttur stjórnarformanns og Aðalsteins Þorsteinssonar forstjóra Byggðastofnunar
Lesa meira

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389