Fara í efni  

Fréttir

Frá íbúaþinginu í Skaftárhreppi

Vantar húsnæði, rafmagn og netþjónustu - Skilaboð íbúaþings í Skaftárhreppi

Í Skaftárhreppi eru miklir möguleikar til að styrkja enn frekar helstu atvinnugreinarnar á svæðinu, ferðaþjónustu og landbúnað. Efling ferðaþjónustu veltur á lengingu ferðamannatímans og í landbúnaði eru margvísleg tækifæri í fullvinnslu og markaðssetningu afurða. Skortur á íbúðar- og atvinnuhúsnæði hamlar hins vegar uppbyggingu og Skaftárhreppur er á köldu svæði og húshitunarkostnaður því hár. Jafnframt þarf að bæta fjarskipti, rafmagn og vegi. Mikilvægt er að íbúar sjálfir hafi trú á sér og samfélaginu og rækti með sér jákvæðni, samhygð og samvinnu.
Lesa meira
Frá íbúafundinum á Bíldudal

Bílddælingar bretta upp ermar

Á íbúaþingi á Bíldudal um liðna helgi, töldu þátttakendur að húsnæðismál, heilbrigðisþjónusta, samgöngur og íþrótta- og æskulýðsmál, séu mikilvægustu stoðirnar í eflingu staðarins. Vel var mætt til þessa tveggja daga þings og um 40 manns tóku þátt í líflegri og frjórri samræðu. Allt var til umræðu og stungu þátttakendur upp á málefnum, allt frá samgöngum til samskipta, ferðaþjónustu til fiskvinnslu og handverki til heilbrigðisþjónustu, svo eitthvað sé nefnt.
Lesa meira
Frá íbúafundi á Kirkjubæjarklaustri

Skaftárhreppur til framtíðar - íbúaþing á Kirkjubæjarklaustri 19. – 20. október.

Helgina 19. – 20. október er boðið til íbúaþings í Skaftárhreppi á vegum Byggðastofnunar, Skaftárhrepps, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Háskólans á Akureyri. Þingið hefst kl. 11 á laugardegi og stendur til kl. 16 og síðan frá kl. 11 – 15 á sunnudeginum. Þátttakendur á þinginu móta sjálfir dagskrána. Allt er til umræðu, staða og framtíð Skaftárhrepps, atvinnumál, umhverfismál og málefni samfélagsins. Fyrirkomulagið er þannig að allir hafa jafna möguleika á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Fyrri daginn eru dregnar fram hugmyndir, þær vegnar og metnar og síðari daginn er gengið frá forgangsröðun verkefna og rætt um næstu skref.
Lesa meira
Byggðastofnun

Byggðastofnun veitir óverðtryggð lán

Á fundi stjórnar Byggðastofnunar þann 9. október síðastliðinn var tekin ákvörðun um að bjóða viðskiptavinum stofnunarinnar upp á óverðtryggð lán. Þetta er í fyrsta skipti sem stofnunin bíður uppá óverðtryggð lán en vextir á lánunum verða með 3,5% álagi ofan á REIBOR.
Lesa meira
16 umsóknir bárust um viðbótaraflamark

16 umsóknir bárust um viðbótaraflamark

Alls bárust 16 umsóknir um 1.800 þorskígildistonna aflaheimildir sem Alþingi fól Byggðastofnun að úthluta til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi.
Lesa meira
Ferðafólk á Ísafirði að sumarlagi

Hagvöxtur landshluta 2007-2011

Skýrsla um Hagvöxt landshluta er nú gefin út í sjötta sinn og að þessu sinni er fjallað um árin 2007-2011. Skýrslan er unnin af Dr. Sigurði Jóhannessyni hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og Sigurði Árnasyni og Snorra Birni Sigurðssyni á Þróunarsviði Byggðastofnunar.
Lesa meira
Kirkjubæjarklaustur

Íbúafundur 7. október á Kirkjubæjarklaustri

Mánudagskvöldið 7. október næstkomandi, kl. 20 er boðið til íbúafundar í Kirkjuhvoli. Fundurinn er sá fyrsti af þremur sem tengist verkefninu „Skaftárhreppur til framtíðar“ á vegum Byggðastofnunar, Skaftárhrepps, SASS og Háskólans á Akureyri.
Lesa meira
Eyrarrósin

Opnað fyrir umsóknir um Eyrarrósina

Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík veita viðurkenningu til framúrskarandi menningarverkefna í tíunda sinn.
Lesa meira
Frá Bíldudal

Samtal um framtíðina, íbúaþing á Bíldudal 28. – 29. september.

Bíldudalur – samtal um framtíðina, er verkefni á vegum Byggðastofnunar, Vesturbyggðar, AtVest, Fjórðungssambands Vestfirðinga og Háskólans á Akureyri. Það er hluti af stærra verkefni sem tekur til þriggja annarra byggðarlaga. Í verkefninu er lögð áhersla á samtal íbúa í byggðum sem búa við erfiða stöðu, um hvað þarf til að efla byggð og ekki síður, hvað samfélagið sjálft getur gert.
Lesa meira
Auglýst eftir umsóknum um viðbótaraflamark

Auglýst eftir umsóknum um viðbótaraflamark

Með breytingu á lögum nr 116/2006 þann 25. júní 2013 samþykkti Alþingi að Byggðastofnun skuli næstu fimm fiskveiðiár hafa til ráðstöfunar aflaheimildir sem nema 1.800 þorskígildis­lestum til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Byggðastofnun hefur mótað eftirfarandi viðmið um úthlutun veiðiheimilda samkvæmt þessari heimild. Meginmarkmið verkefnisins er að auka byggðafestu í þeim sjávarbyggðum sem: standa frammi fyrir alvarlegum og bráðum vanda vegna skorts á aflaheimildum eða óstöðugleika í sjávarútvegi, eru háðastar sjávarútvegi og eiga minnsta möguleika á annarri atvinnuuppbyggingu, eru fámennar, fjarri stærri byggðakjörnum og utan fjölbreyttra vinnusóknarsvæða.
Lesa meira

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars apríl
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389