Fréttir
Byggðastofnun kaupir eignarhluti í fyrirtækjum á landsbyggðinni fyrir 350 milljónir króna
Almennt
12 janúar, 2004
Byggðastofnun hefur ákveðið kaup á eignarhlutum í 23 sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum á landsbyggðinni fyrir samtals um 350
milljónir króna. Um er að ræða lið í átaki sem ríkisstjórnin samþykkti að hrinda í framkvæmd í febrúar
á síðasta ári en þá var ákveðið að verja 700 milljónum króna til atvinnuþróunarverkefna á landsbyggðinni
og var Byggðastofnun fengið það verkefni að úthluta 500 milljónum af þessum fjármunum. Í apríl sl. var auglýst eftir
umsóknum um 350 milljónir í hlutafjárkaupum og var atvinnulífið flokkað í þrjá flokka, þ.a. sjávarútveg og tengdar
greinar, iðnað, upplýsingatækni, líftækni, landbúnað og tengdar greinar og loks var þriðji flokkurinn ferðaþjónusta og tengdar
greinar.
Lesa meira
Þorvaldur T. Jónsson tekur sæti í stjórn Byggðastofnunar
Almennt
6 janúar, 2004
Þorvaldur Tómas Jónsson, bóndi í Hjarðarholti í Borgarfirði og rekstrarráðgjafi, hefur verið skipaður í stjórn
Byggðastofnunar frá 1. janúar sl. í stað Elísabetar Benediktsdóttur. Elísabet tók nýverið við starfi forstöðumanns
Íslandsbanka á Reyðarfirði.
Lesa meira
Byggðastofnun stýrir embættismannanefnd Norðurlanda um byggðaþróun á árinu 2004
Almennt
19 desember, 2003
Ísland mun taka við formennsku í Norðurlandaráði á komandi ári og meðal þess starfs á norrænum vettvangi sem Ísland mun
leiða er formennska í embættismannanefnd Norðurlanda um byggðaþróun. Byggðastofnun hefur þetta formennskuhlutverk með höndum fyrir
Íslands hönd.
Lesa meira
Samkomulag um undirbúning framhaldsnáms í byggðaþróunarfræðum við Háskólann á Akureyri
Almennt
5 desember, 2003
Fyrr í vikunni undirrituðu Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans
á Akureyri, samning um undirbúning framhaldsnáms í byggðaþróunarfræðum við Háskólann á Akureyri. Þetta er gert
í samræmi við ákvæði í í byggðaáætlun ríkisstjórnarinnar 2002-2005 þar sem m.a. er lögð áhersla
á eflingu menntastofnana og samþættingu rannsókna og stuðningsaðgerða í þeim tilgangi að afrakstur þeirra verði sem mestur fyrir
byggðaþróunina.
Lesa meira
Sýninga- og ráðstefnuröðin Athafnakonur
Almennt
3 nóvember, 2003
Nú stendur Kvennasjóður í samstarfi við Kvenréttindafélag Íslands, Kvenfélagasamband Íslands og Atvinnu- og
jafnréttisráðgjafa Suður- og Norðausturkjördæma fyrir sýninga- og ráðstefnuröðinni Athafnakonur. Um er að ræða
sýningar á starfsemi fyrirtækja sem notið hafa stuðnings frá Kvennasjóði. Í tengslum við hverja sýningu mun sjóðurinn standa
fyrir örnámskeiði fyrir konur í atvinnurekstri auk ráðstefnu um atvinnumál kvenna.
Lesa meira
Snorri Björn ráðinn forstöðumaður þróunarsviðs
Almennt
7 október, 2003
Snorri Björn Sigurðsson hefur verið ráðinn forstöðumaður þróunarsviðs Byggðastofnunar frá 1. desember næstkomandi. Snorri
Björn hefur verið starfsmaður sviðsins frá því í október 2002. Hann tekur við starfinu af Bjarka Jóhannessyni.
Lesa meira
Tvö verkefni valin til þátttöku í Rafrænu samfélagi
Almennt
24 september, 2003
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur tilkynnt um niðurstöður valnefndar í samkeppni um ,,Rafrænt samfélag“. Í
þingsályktun um byggðamál kemur fram að efnt skuli til samkeppni um ,,Rafrænt samfélag“. Byggðastofnun var falið að efna til
samkeppninnar um uppbyggingu rafrænna samfélaga. Fyrir valinu urðu tvö verkefni. Annars vegar samstarfsverkefni þriggja sveitarfélaga Árborgar, Hveragerðis og Ölfuss. Nafn verkefnisins er ,,Sunnan
3-Þekkingarsamfélag á grunni styrkrar staðsetningar". Hins vegar samstarfsverkefni Aðaldælahrepps,
Húsavíkurbæjar og Þingeyjarsveitar sem munu vinna í
sameiningu að verkefni sem hefur fengið vinnuheitið ,,Virkjum alla“.
Lesa meira
Hálf milljón gesta á upplýsingamiðstöðvunum
Almennt
24 september, 2003
Byggðastofnun og Félag ferðamálafulltrúa á Íslandi hafa lokið við könnun og skýrslu um rekstrar- og starfsumhverfi
upplýsingamiðstöðva á Íslandi. Markmið könnunarinnar var að fá upplýsingar um rekstrarfjármögnun, launakostnað og
sértekjur upplýsingamiðstöðva og hvað felst í þeirri þjónustu sem upplýsingamiðstöðvar veita gestum,
ferðaþjónustu- og/eða rekstraraðilum. Auk þess að kanna hvaða viðhorf og væntingar umsjónaraðilar
upplýsingamiðstöðva höfðu í tengslum við samstarf, markaðssetningu, veikleika og styrkleika ferðaþjónustunnar.
Lesa meira
Byggðastofnun vinnur að greiningu á styrkleikum og veikleikum sjávarbyggða og landbúnaðarkjarna
Almennt
12 september, 2003
Hjá Byggðastofnun stendur nú yfir vinna við styrk- og veikleikagreiningu (SVÓT) fyrir sjávarbyggðir og landbúnaðarkjarna. Í skýrslu
sem kom út hjá Byggðastofnun í október 2001 var gerð grein fyrir slíkri greiningu á landshlutum en með greiningunni nú er ætlunin
að fá gleggri mynd af einstökum byggðarlögum.
Lesa meira
Fréttasafn
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember