Fara í efni  

Fréttir

Aflamark Byggðastofnunar - boð um samstarf

Aflamark Byggðastofnunar - boð um samstarf

Með breytingu á lögum nr. 116/2006 þann 25. júní 2013 samþykkti Alþingi að Byggðastofnun skuli hafa til ráðstöfunar aflaheimildir til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að auka aflaheimildir Byggðastofnunar um 1100 þorskígildistonn og tekur breytingin gildi á næsta fiskveiðiári (2014/2015). Byggðastofnun hefur mótað eftirfarandi viðmið um úthlutun veiðiheimilda samkvæmt þessari heimild.
Lesa meira
Byggðaráðstefna 2014

Byggðaráðstefna 2014

Kallað er eftir erindum frá fræðimönnum, stefnumótendum og þeim sem vinna á vettvangi um stöðu og þróun byggðar almennt en þó sérstaklega um þemað Sókn Sjávarbyggða: Kemur framtíðin? Koma konurnar? Sérstakar málstofur verða helgaðar þema ráðstefnunnar en viðfangsefni annarra málstofa mun ráðast af þeim erindum sem berast. 


Lesa meira
Northern Periphery and Arctic 2014-2020

Northern Periphery and Arctic 2014-2020

Meginmarkmið Norðurslóðaáætlunar er að stuðla að bættu atvinnu- og efnahagslífi og að eflingu búsetuþátta með fjölþjóðlegu samstarfi. Áherslur áætlunarinnar eru á nýsköpun, frumkvöðlastarfsemi, endurnýjanlega orkagjafa og orkusparnað, verndun náttúru og menningar og hagkvæma nýtingu auðlinda á norðurslóðum. Þátttakendur geta m.a. verið fyrirtæki, sveitarfélög, ríkistofnanir, atvinnuþróunarfélög, mennta- og rannsóknarstofnanir og frjáls félagasamtök.
Lesa meira
Samanburður á orkukostnaði

Samanburður á orkukostnaði heimila á nokkrum stöðum

Byggðastofnun hefur fengið Orkustofnun til að reikna út kostnað við raforkunotkun og húsahitun á sömu fasteigninni á nokkrum þéttbýlisstöðum og nokkrum stöðum í dreifbýli á ársgrundvelli. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161,1 m2 að grunnfleti og 351m3. Gjöldin eru reiknuð út samkvæmt gjaldskrá þann 1. apríl 2014.
Lesa meira
Íbúaþróun á Íslandi

Íbúaþróun uppfærð

Í nokkur ár hefur Byggðastofnun birt upplýsingar um íbúaþróun í sveitarfélögum landsins á myndrænann hátt á heimasíðu sinni. Nú hefur tölum vegna ársins 2014 verið bætt inn og nú hægt að sjá íbúaþróun frá 1998-2014.
Lesa meira
Árni Sigurbjörnsson tekur við Landstólpanum

Norðursigling á Húsavík hlýtur Landstólpann

Ársfundur Byggðastofnunar var haldinn í dag í menningarhúsinu Miðgarði í Skagafirði. Á fundinum var Norðursiglingu og Herði og Árna Sigurbjarnarsonum á Húsavík veittur Landstólpinn fyrir uppbyggingu hvalaskoðunar á Húsavík.
Lesa meira
ESA

Byggðakort fyrir Ísland 2014-2020 samþykkt

ESA, eftirlitsstofnun EFTA, samþykkti 24. apríl sl. tillögu Íslands um svæði þar sem veita má byggðaaðstoð, svokallað byggðakort. Byggðakortið skilgreinir þau svæði á Íslandi þar sem leiðbeiningarreglur ESA um byggðaaðstoð gilda. Á þeim svæðum einum getur ESA heimilað að Ísland veiti byggðaaðastoð.
Lesa meira
Miðgarður

Ársfundur Byggðastofnunar

Ársfundur Byggðastofnunar verður haldinn mánudaginn 28. apríl nk. í menningarhúsinu Miðgarði, Skagafirði
Lesa meira
Frá íbúaþingi

Enn brothætt staða á Raufarhöfn þó margt hafi áunnist

Margt hefur áunnist á Raufarhöfn fyrir tilstuðlan verkefnisins, „Raufarhöfn og framtíðin“, en staða byggðarinnar er engu að síður alvarleg og brothætt. Þetta er meginniðurstaða fjölmenns íbúafundar sem haldinn var á Raufarhöfn, þriðjudaginn 8. apríl.
Lesa meira
Frá íbúaþingi

Jákvæð gerjun á Bíldudal

Íbúar Bíldudals vinna nú að ýmsum framfaramálum í kjölfar íbúaþings sem haldið í september síðastliðnum. Búið er að endurvekja skógræktarfélag og stofna handverkshóp og ýmislegt er á döfinni í ferðaþjónustu. Þá munu Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur í samstarfi við íþróttafélögin á svæðinu, ráða íþrótta- og æskulýðsfulltrúa.
Lesa meira

Fréttasafn

2025
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst
2024
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389