Fréttir
Tillögur í byggðaáætlun 2017-2023
			Almennt
		
					11 október, 2016			
	
	Vel hefur verið tekið undir óskir um að einstaklingar geri tillögur fyrir byggðaáætlunina hér á vefsvæði Byggðastofnunar. Tillögurnar má sjá í tillögusafninu, hér, og hér má gera tillögu og senda til Byggðastofnunar. Opið verður fyrir aðsendar tillögur einstaklinga fram til hádegis mánudaginn 17. október.
Lesa meira
	Fundir í samráðsvettvöngum landshlutanna
			Almennt
		
					10 október, 2016			
	
	Í október hefur starfsfólk Byggðastofnunar og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins fundað með samráðsvettvöngum fyrir sóknaráætlanir landshlutanna um mótun byggðaáætlunar 2017-2023. Á fundunum hefur staða verksins verið kynnt, aðsendar tillögur og tillögur sem í vinnslu eru á Byggðastofnun. Síðan hafa farið fram umræður um áherslumál og tillögur fyrir byggðaáætlunina. Glærur sem Byggðastofnun hefur sýnt á fundunum má sjá á hér. 
Lesa meira
	Forstöðumaður fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar
			Almennt
		
					 4 október, 2016			
	
	Fyrir skömmu var auglýst starf forstöðumanns fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar.  Alls bárust 20 umsóknir og hefur Arnar Már Elíasson verið ráðinn í starfið.  Arnar Már hefur mikla reynslu af banka og útlánastarfsemi.  Hann er fæddur árið 1979 og hefur frá árinu 2009 starfað hjá Íslandsbanka og þar áður sem lánastjóri og fyrirtækjafulltrúi hjá SPRON frá árinu 2004.   Hann er með B.A gráðu í hagfræði frá Winthrop University í Bandaríkjunum.  Í starfi sínu hjá Íslandsbanka er hann viðskiptastjóri í útibúi bankans í Hafnarfirði. Þar veitir hann fyrirtækjasviði forstöðu auk þess að vera staðgengill útibússtjóra. 
Lesa meira
	Tilkynning um forval - Lokað alútboð
			Almennt
		
					 4 október, 2016			
	
	Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Byggðastofnunar, hér eftir nefndur verkkaupi, auglýsir eftir  verktaka til að taka þátt í fyrirhuguðu lokuðu alútboði vegna hönnunar og byggingar á skrifstofuhúsnæði á Sauðárkróki. Hér er um að ræða forval, þar sem þátttakendur  verða valdir með tilliti til hæfni og reynslu. Leitað er að verktaka, sem getur tekið að sér að hanna og byggja skrifstofubygginguna, samkvæmt forsögn, sem gefin verður út síðar sem hluti útboðsgagna. 
Lesa meira
	Ráðstefnan um búsetuþróun til 2030 tókst vel
			Almennt
		
					29 september, 2016			
	
	Síðast liðinn þriðjudag var haldin ráðstefna undir yfirskriftinni „Búsetuþróun til 2030“ þar sem Karl Friðriksson og Sævar Kristinsson, hjá Framtíðarsetri Íslands, kynntu niðurstöður sviðsmyndagreiningar um búsetuþróun á Íslandi til ársins 2030.  Sviðsmyndagreiningin er liður í gerð byggðaáætlunar fyrir árin 2017-2023 sem nú stendur yfir.  Hafa ber í huga að í þeim felst ekki spá um framtíðina, heldur geta þær hjálpað til við að skija og lifa með óvissu, hvar ógnanir geta leynst og ekki síður hvaða tækifæri kunna að vera til staðar.
Lesa meira
	Rýnt í framtíðarþróun byggðar á Íslandi
			Almennt
		
					27 september, 2016			
	
	Gerð verður tilraun til að spá fyrir um framtíðina á ráðstefnu sem Byggðastofnun og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið standa fyrir á Grand Hótel í Reykjavík 27. september kl. 13:00 til 17:00 „Búsetuþróun til 2030“.
Lesa meira
	Vel sótt byggðaráðstefna á Breiðdalsvík um sóknarfæri landsbyggða og ungt fólk
			Almennt
		
					23 september, 2016			
	
	Byggðastofnun, Austurbrú, Breiðdalshreppur, Samband Íslenskra sveitarfélaga og Samtök sveitarfélaga á Austurlandi héldu ráðstefnu á Breiðdalsvík 14.-15. september með yfirskriftinni.  Sókn landsbyggða:  Kemur unga fólki? Hvar liggja tækifærin? 
Lesa meira
	Hvernig þróast búseta á Íslandi?
			Almennt
		
					13 september, 2016			
	
	Hvaða kraftar munu hafa áhrif á búsetuþróun á Íslandi fram til ársins 2030? Leiða þeir til vaxandi fólksflótta eða fjölgar landsmönnum svo um munar? Verður Ísland borgríki eða munu landsbyggðirnar ná jafnvægi? Hvert ber að stefna í byggðaáætlun sem er í mótun?
Lesa meira
	NORA auglýsir verkefnastyrki 2016, síðari úthlutun
			Almennt
		
					 7 september, 2016			
	
	Markmið með starfi Norræna Atlantshafssamstarfsins (NORA) er að efla samstarf á svæðinu. Ein af leiðunum að því marki er að veita verkefnastyrki tvisvar á ári til samstarfsverkefna með þátttakendur frá að minnsta kosti tveimur af fjórum aðildarlöndum NORA (Grænlandi, Íslandi, Færeyjum og Noregi). Nú auglýsir NORA eftir umsóknum um styrki með umsóknarfrest mánudaginn 3. október 2016.
Lesa meira
	Skilafrestur fyrir aðsendar tillögur
			Almennt
		
					31 ágúst, 2016			
	
	Aðsendar tillögur til Byggðastofnun í byggðaáætlun 2017-2023 er að finna í tillögusafninu, undir BYGGÐAÁÆTLUN á heimasíðu stofnunarinnar. Þar er líka form fyrir nýjar tillögur til þess að senda Byggðastofnun. Skilafrestur fyrir aðsendar tillögur er til mánudagsins 10. október nk. þegar fundum starfsmanna Byggðastofnunar með samráðsvettvöngum landshlutasamtaka sveitarfélaga lýkur.
Lesa meira
	Fréttasafn
- 2025
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember
 - 2024
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2023
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2022
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2021
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2020
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2019
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2018
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2017
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2016
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2015
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2014
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2013
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2012
 - janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
 - 2011
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2010
 - janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
 - 2009
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2008
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
 - 2007
 - mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
 - 2006
 - janúar febrúar mars maí júní ágúst september
 - 2005
 - janúar febrúar mars júní október nóvember desember
 - 2004
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
 - 2003
 - janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember
 
			
					
