Fréttir
Svæðaráðstefna NORA 2013: Fjölmiðlar á Norður-Atlantssvæðinu
9 september, 2013
Á undanförnum árum hefur áhugi á norðurheimskautssvæðinu farið vaxandi. Hvaða áhrif hefur þessi áhugi á þá mynd sem fjölmiðlar heimsins gefa af löndunum á heimskautssvæðinu? Hvernig geta fjölmiðlar þessara landa lifað af í sívaxandi samkeppni í fjölmiðlaheiminum? Hvernig má efla gagnrýna umræðu fjölmiðla í fámennum samfélögum þar sem maður þekkir mann? Hvaða áskorunum og tækifærum standa fjölmiðlar svæðisins frammi fyrir?
Lesa meira
Bíldudalur – samtal um framtíðina:
5 september, 2013
Atvinnumál og grunnþjónusta voru Bílddælingum ofarlega í huga á íbúafundi sem haldinn var í félagsheimilinu Baldurshaga þriðjudaginn 3. september. Tilefni fundarins var tvíþætt. Annars vegar kynning á lýsingu vegna aðalskipulagsbreytingar Vesturbyggðar. Hins vegar tengdist fundurinn byggðaþróunarverkefni sem Byggðastofnun stendur fyrir á Bíldudal, með það að markmiði að virkja íbúa í svokölluðum „brothættum byggðum“. Unnið hefur verið að sambærilegu verkefni á Raufarhöfn og auk Bíldudals verður unnið með sama hætti í Skaftárhreppi og Breiðdalshreppi. Að verkefninu standa Vesturbyggð, AtVest, Fjórðungssamband Vestfirðinga og Háskólinn á Akureyri ásamt Byggðastofnun.
Lesa meira
NORA: Umsóknarfrestur 7. október
28 ágúst, 2013
NORA óskar eftir styrkumsóknum með umsóknarfrest þann 7. október 2013. NORA veitir styrki að hámarki 500.000 danskar krónur á ári og mest til þriggja ára. Skilyrði er að þátttaka sé frá a.m.k. tveimur NORA-löndum.
Lesa meira
Árshlutareikningur Byggðastofnunar janúar - júní 2013
26 ágúst, 2013
Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar til júní 2013, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 26. ágúst 2013. Hagnaður tímabilsins nam 184,2 milljónum króna, samanborið við 206,4 milljón króna tap á sama tímabili 2012. Skýrist þetta fyrst og fremst með því að 5. júní 2013 staðfesti Hæstiréttur Íslands úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Byggðastofnunar gegn Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis hf., þar sem krafa Byggðastofnunar að fjárhæð 271,3 milljónir króna var viðurkennd sem forgangskrafa. Höfðu 238 milljónir króna af þeirri kröfu áður verið afskrifaðar.
Lesa meira
Úthlutun byggðakvóta til sjávarbyggða
8 ágúst, 2013
Með breytingu á lögum nr 116/2006 þann 25. júní 2013 samþykkti Alþingi að Byggðastofnun skuli næstu fimm fiskveiðiár hafa til ráðstöfunar aflaheimildir sem nema 1.800 þorskígildislestum til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi.
Lesa meira
Útgreiðsla flutningsjöfnunarstyrkja hafin
10 júlí, 2013
Alls bárust 66 umsóknir um flutningsjöfnunarstyrki vegna flutningskostnaðar fyrir árið 2012, en sótt er um eitt almanaksár í senn. Búið er að afgreiða 44 umsóknir og hafa 138 m.kr. verið greiddar út. Aðrar umsóknir eru í vinnslu en stefnt er að því að ljúka afgreiðslu á þeim nú í júlí.
Lesa meira
NORA styrkir níu samstarfsverkefni og öll með íslenskri þátttöku
1 júlí, 2013
Á ársfundi NORA þann 4. júní voru samþykktir styrkir að fjárhæð tæpar 2,6 milljónir danskra króna (rúmar 57 mkr.) til níu samstarfsverkefna á NORA-svæðinu. Umsóknum um styrki hefur farið fjölgandi ár hvert og að þessu sinni bárust um 40 umsóknir. Íslendingar eru afar virkir þátttakendur í samstarfinu og eru með í næstum öllum verkefnum sem fá styrki.
Lesa meira
Íslenskir verkefnisstjórar í þremur nýjum forverkefnum á vegum Norðurslóðaáætlunarinnar
28 júní, 2013
Á stjórnarfundi Norðurslóðaáætlunarinnar (NPP) 18. júní sl. var ákveðið að styrkja 19 ný forverkefni og taka íslenskir aðilar þátt í átta forverkefnum og leiða í þremur þeirra sem telja verður mjög góður árangur. Alls bárust 43 umsóknir um forverkefnisstyrki. Tilgangur forverkefna er að stuðla að gerð sterka aðalverkefna og er næsti umsóknarfrestur um aðalverkefni á næsta ári þegar ný áætlun tekur gildi.
Lesa meira
Gerjun á Raufarhöfn
21 júní, 2013
Talsverð gerjun er á Raufarhöfn þessa dagana, ári eftir að verkefni Byggðastofnunar í samstarfi við Norðurþing, Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga og fleiri aðila um framtíð Raufarhafnar hófst. Hár styrkur fékkst nýverið til eflingar ferðaþjónustu á Raufarhöfn, Alþingi er að ræða möguleika á veitingu aflaheimilda til byggðarlaga í alvarlegum vanda og ýmsir aðilar skoða möguleika í sjávarútvegi og ferðaþjónustu á staðnum.
Lesa meira
Nýr starfsmaður Byggðastofnunar
19 júní, 2013
Byggðastofnun hefur ráðið Einar Örn Hreinsson til starfa sem sérfræðing á þróunarsviði stofnunarinnar.
Einar Örn er fæddur 17. júní 1973. Hann er með B.Sc. gráðu í eðlisfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í landafræði frá University of Canterbury, Christchurch, á Nýja Sjálandi. Hann hefur á undanförnum árum starfað hjá National Institute of Water and Atmospheric Research Ltd. (NIWA) á Nýja Sjálandi og þar áður hjá Orkustofnun og Einkaleyfastofu.
Einar Örn mun koma til starfa í byrjun ágúst.
Lesa meira
Fréttasafn
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2014
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2013
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2012
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2011
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2010
- janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
- 2009
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2008
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2007
- mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
- 2006
- janúar febrúar mars maí júní ágúst september
- 2005
- janúar febrúar mars júní október nóvember desember
- 2004
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2003
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember