Fara í efni  

Fréttir

Uppfærð skrá yfir staðsetningu ríkisstarfa

Uppfærð skrá yfir staðsetningu ríkisstarfa

Skrá yfir staði ríkisstarfa sem birt var á heimasíðu Byggðastofnunar 25. ágúst sl. hefur vakið talsverða athygli og umræðu. Skráin hefur nú verið uppfærð í kjölfar ábendinga sem borist hafa Byggðastofnun. Þannig hefur starfsemi framhaldsskóla verið skipt þannig að í sérstakan flokk eru settir staðir með tveggja ára skóla og dreifnám með starfsmanni sem hefur tengsl við ákveðinn framhaldsskóla. Þýðingarstofur eða –miðstöðvar hafa verið færðar í einn flokk og tveimur stofnunum hefur verið bætt við í Reykjavík.
Lesa meira
Staðsetning starfa ríkisins

Staðsetning starfa ríkisins

Staðsetning starfa á vegum ríkisins er oft nefnd sem byggðamál en líklega sjaldan í samhengi við Reykjavík sem þó hefur notið stórkostlegs byggðastuðnings stjórnvalda að þessu leyti. Reykjavík er aðsetur langflestra starfsþátta á vegum ríkisins eins og sést á meðfylgjandi töflu, einkum þeirra sem hafa landið allt að vettvangi og marga starfsmenn. Þetta er alkunna og niðurstaða í könnun á staðsetningu ríkisstarfa kemur ekki á óvart.
Lesa meira
Árshlutauppgjör janúar - júní 2014

Árshlutauppgjör janúar - júní 2014

Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar – júní 2014, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 22. ágúst 2014.
Lesa meira
Merki NORA

NORA styrkir níu verkefni

Á ársfundi Norræna Atlantssamstarfsins, NORA, sem haldinn var í Nuuk á Grænlandi þann 3. júní sl. var samþykkt að styrkja níu samstarfsverkefni, öll með íslenskri þátttöku.
Lesa meira
Skýrsla Nordregio um norræna svæðaþróun

Skýrsla Nordregio um norræna svæðaþróun

Í skýrslunni Staða Norðurlandanna 2013, sem unnin er af Nordregio og gefin var út fyrr á árinu, er umfangsmikil greining á norrænni svæðaþróun. Hún beinist aðallega að lýðfræðilegum breytingum, atvinnumálum og hagrænni þróun á norræna svæðinu. Skýrslan varpar ljósi á hversu vel Ísland stendur í norrænu samhengi.
Lesa meira
Breyting á fasteignamati 2010-2014

Þróun fasteignamats og fasteignagjalda 2010 til 2014

Fasteignamat íbúðarhúsnæðis hefur hækkað mjög mis mikið í prósentum á milli áranna 2010 og 2014 eftir einstökum þéttbýlisstöðum. Mest hefur hækkun matsins í prósentum verið í Vestmannaeyjum 70,6% og næst mest á Höfn í Hornafirði og á Siglufirði 64,1%. Þetta eru einu staðirnir þar sem hækkunin er yfir 50%. Hólmavík liggur þó nærri með 48,7% hækkun en engir aðrir staðir ná 40% hækkun.
Lesa meira
Áfangaskil í byggðaþróunarverkefni á Raufarhöfn

Áfangaskil í byggðaþróunarverkefni á Raufarhöfn

Frá því að umræða um þróunarverkefni Byggðastofnunar, Norðurþings, Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga, Háskólans á Akureyri og íbúa Raufarhafnar hófst, á vormánuðum 2012, hefur ýmislegt verið til umfjöllunar og árangur náðst í nokkrum málum en minni í öðrum.
Lesa meira
Fréttir af Norðurslóðaáætluninni (NPP)

Fréttir af Norðurslóðaáætluninni (NPP)

Norðurslóðaáætlun fjármagnaði 47 verkefni á tímabilinu 2007-2013, íslenskir aðilar voru þátttakendur í 23 verkefnum, eða í 49% verkefna. Ný Norðurslóðaáætlunin (NPA) 2014-2020 hefst formlega á árlegri ráðstefnu áætlunarinnar sem verður haldin í Skotlandi þann 30. September n.k., þema ráðstefnunnar er Cool North.
Lesa meira
Samanburður á fasteignagjöldum

Samanburður fasteignagjalda á nokkrum þéttbýlisstöðum

Byggðastofnun hefur fengið Þjóðskrá Íslands til að reikna út fasteignamat og fasteignagjöld á sömu fasteigninni á nokkrum þéttbýlisstöðum á landinu eins og undanfarin ár. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161,1 m2 að grunnfleti. Stærð lóðar er 808m2. Gjöldin eru reiknuð út samkvæmt núgildandi fasteignamati sem gildir frá 31. desember 2013 og samkvæmt álagningarreglum ársins 2014 eins og þær eru í hverju sveitarfélagi. Fasteignamat húss og lóðar á höfuðborgarsvæðinu, miðað við meðaltal, er 38,2 milljónir og hefur hækkað úr 36,6 milljónum árið 2012. Af þeim þéttbýlisstöðum sem skoðaðir voru utan höfuðborgarsvæðisins er matið hæst á Akureyri 31,6 milljónir, var 30,7 milljónir 2012. Lægst er matið eins og áður á Patreksfirði 10,6 milljónir, var 9,7 milljónir.
Lesa meira
Stjórn Rifs ásamt fylgdarliði

Fyrsti stjórnarfundur Rannsóknastöðvarinnar Rifs á Raufarhöfn

Fyrsti stjórnarfundur Rannsóknastöðvarinnar Rifs ses var haldinn á Raufarhöfn miðvikudaginn 11. júní sl. Í upphafi fundar afhentu Kristján Þórhallur Halldórsson, starfsmaður Byggðastofnunar á Raufarhöfn og Þorkell Lindberg stjórninni staðfesta skipulagsskrá stöðvarinnar og báru henni um leið góðar kveðjur frá Aðalsteini Þorsteinssyni, forstjóra Byggðastofnunar og Bergi Elíasi Ágústssyni bæjarstjóra Norðurþings, en Byggðastofnun, Náttúrustofan og Norðurþing eru stofnaðilar stöðvarinnar.
Lesa meira

Fréttasafn

2024
janúar febrúar mars
2023
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2022
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2021
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2020
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2019
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2018
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2017
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2016
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2015
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2014
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2013
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2012
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2011
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2010
janúar febrúar mars apríl maí júní ágúst september október nóvember desember
2009
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2008
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
2007
mars maí júní júlí ágúst september október nóvember
2006
janúar febrúar mars maí júní ágúst september
2005
janúar febrúar mars júní október nóvember desember
2004
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
2003
janúar febrúar mars apríl maí júní júlí september október nóvember desember

Skráning á póstlista

  • Byggðastofnun  |  Sauðármýri 2  |  550 Sauðárkrókur 
  • Sími 455-5400
  • postur@byggdastofnun.is
  • Opið frá kl. 8:30-12:00 & 13:00-16:00  | kt. 450679-0389